Laugardagur 17. október, 2026
9.8 C
Reykjavik

Sigursteinn: „Hvað getum við gert í þessu, þetta er alveg hræðilegt?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sauðfjárbóndinn Sigursteinn Bjarnason hefur áhyggjur af takmarkaðri þekkingu ungra landsmanna á afkvæmum sauðkindarinnar. Á sama tíma gleðst hann yfir góðmennsku þessa sama fólks sem gerði allt til að bjarga lömbunum hans nýverið.

Sigursteinn segir fallega sögu inni í hópi sauðfjárbænda á Facebook um ungt fólk sem var umhugað um að bjarga lömbunum. Við skulum gefa honum orðið:

„Ein lítil saga um atburð sem endaði vel,samviskusemi vegfarenda og takmarkaða þekkingu á nöfnum á afkvæmum sauðfjár. Nú sl. laugadaskvöld var barið að dyrum hérna um hálf ellefu um kvöldið og úti stóð ungur maður í miklu uppnámi. Það varð slys sagði hann, alveg hræðilegt slys. Mér brá nú talsvert en hann hélt áfram og sagði: Það er þetta með kindurnar sko það fór ekki vel. Mér datt ekkert annað í hug en að það hefði kind farið fyrir bílinn, en nei. Við vorum sagði maðurinn hérna hjá stóru timburgirðingunni (Stafnsrétt) og þá slapp Nikki út og rauk burtu og hann hlýddi engu. Nikki er svona hundur þú veist. Svo voru kindur þarna og hann stökk á þær og þær fóru út um allt og sumar í vatnið (Svartá) en við erum með tvær litlar kindur í bílnum,“ segir Sigursteinn og heldur áfram.

„Nikki kom með aðra en hin lá bara eins og dauð en hún er samt lifandi. Hvað getum við gert í þessu þetta er alveg hræðilegt? Þegar hér var komið sögu kom konan út úr bílnum og var ekki síður miður sín. Heldurðu að það sé ekki hægt að gefa þeim mjólk eða eitthvað svo að þær haldi áfram að lifa spurði hún. Þegar búið var að setja lömbin í kerru sagði ég við þau að líklega mundi þetta fara allt vel, móðirin mundi nú ekki vera komni langt og lömbin kæmust því fljótlega til hennar sem og líka varð. Svo skildu þau eftir símanúmer sem ég átti að hringja í ef þetta hefði alvarlegri afleiðingar. Þetta sýnir að þó að þekkingin á dýrahaldi sé eftilvill á undanhaldi eru langflestir vegfarendur samviskusamir.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -