Miðvikudagur 11. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Sigurður G. birti gögn um fórnarlamb: Nátengdur fjölskyldu Kolbeins og í stjórn Bakarameistarans“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður er tengdur fjölskyldu Kolbeins Sigþórssonar. Hann hefur starfað sem lögmaður Bakarameistarans, sem er í eigu Sigþórs Sigurjónssonar, föður Kolbeins, og situr líka í stjórn fyrirtækisins – einn þriggja stjórnarmanna ásamt foreldrum Kolbeins. Þar að auki er Sigurður G. forseti dómstóla KSÍ: Starfar þar með lögmanni Kolbeins, Herði Felixi Harðarsyni, sem er þar varamaður.

Í samtali við Stundina segir Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður, Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur að  „það er ekki eins og þarna sé óháður lögmaður á ferð sem er að koma á framfæri einhverjum sannleika, heldur er verið að reyna að gera lítið úr brotaþola“.

Segja má að allt hafi orðið vitlaust þegar lögfræðingurinn Sigurður G. birti gögn á Facebook um mál sem varðaði Kolbein og Þórhildi Gyðu sem Kolbeinn beitti ofbeldi og gekkst síðar við sátt og miskabótum. Áðurnefndur lögmaður birti nýlega brot úr lögregluskýrslum á Facebook-síðu sinni. Þar kom fram samtal lögreglu við brotaþola Kolbeins, Þórhildi Gyðu.

Þórhildur Gyða Arnarsdóttir.

Gunn­ar Ingi seg­ir að slík birt­ing rann­sókn­ar­gagna geti varð­að við brot á hegn­ing­ar­lög­um. Hann segist vera að íhug­a að kæra Sig­urð­ur G. Guð­jóns­son til lög­reglu vegna birtingarinnar. 

Gunnar Ingi Jóhannsson.

Gunnar Ingi segir að rík ástæða sé til þess að hafa áhyggj­ur af því að rann­sókn­ar­gögn í saka­mál­i eða sakamálum séu not­uð í annarlegum til­gangi á op­in­ber­um vett­vangi; ástæðu til að hafa áhyggj­ur af því að lög­mað­ur sem ekki hef­ur að­komu að mál­inu sé feng­inn til að „fronta“ birt­ingu slíkra gagna.

 

- Auglýsing -
Sigurður Örn Hilmarsson.

Sigurður G. hefur sætt harðri gagnrýni fyrir birtingu gagnanna; konan sem um ræðir, Þórhildur Gyða, ætlar að leita réttar síns vegna málsins og formanni Lögmannafélags Íslands, Sigurði Erni Hilmarssyni, sagðist hafa brugðið við lesturinn og að hann skildi ekki hvernig lögmanni detti í hug að birta lögregluskýrslur á samfélagsmiðli.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -