Fimmtudagur 12. júní, 2025
9.8 C
Reykjavik

Sigurður er látinn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigurður Björnsson krabbameinslæknir er látinn. Hann lést í gær á Landspítalanum í Fossvogi, 82 ára að aldri. Hann fæddist 5. júní 1942 í Bandaríkjunum.

Foreldrar hans voru Björn Sigurðsson, læknir og forstöðumaður á Keldum, og  Unua Jóhannesdóttir fulltrúi.  Sigurður lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1968. Hann hélt til framhaldsnáms í Bandaríkjunum og lauk sérfræðiprófi í lyflækningum krabbameina.
Frá árinu 1978 starfaði hann á Landspítala, St. Jósefsspítala á Landakoti og Borgarspítala. Hann lauk starfsferli sínum sem yfirlæknir á Landspítalanum árið 2014 en starfaði áfram
sérfræðilæknir í Læknasetrinu allt til ársins 2021.

Sigurður var formaður Krabbameinsfélags Íslands á árabilinu 1998 til 2008. Árið 2005 var Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu krabbameinslækninga. Morgunblaðið sagði fyrst frá andláti hans.

Eftirlifandi kona Sigurðar er Rakel Valdimarsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Sigurður á þrjú börn frá fyrra hjónabandi, þau Kristínu, Björn Pétur og Signýju Sif. Barnabörnin eru níu og langafabörnin tvö. Börn Rakelar eru tvö frá fyrra
hjónabandi, þrjú barnabörn og eitt langömmubarn.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -