Hvað er að? spyr Sigurður Freyr í Facebook hópnum Íbúar í Grafarvogi. Sigurður birtir svo meðfylgjandi mynd af fatasöfnunargámi Rauða krossins, sem búið er að ganga verulega illa um.

Fólk tjáir sig svo undir færslunni. Fanney segist hafa séð konu gramsa þarna um helgina, Árni segir að gámurinn sé of lítill og undir það er tekið hjá houm. Komið er inn á að gámarnir séu of sjaldan tæmdir en þá er sömuleiðis bennt á það að það afsaki ekki svona umgang. Einn íbúi spyr hvort hann hafi ekki verið tæmdur til þess að stela úr honum. Margrét bendir á að þetta sé búið að vera svona síðan fyrir helgi. Gravarvogsbúar höfðu mikið um málið að segja og hér má sjá fleiri ummæli um málið:
„Jah…ekki er hægt að kenna máfinum né krumma um þetta“

„Það er meira eins og einhver hafi verið að týna uppúr honum… ekkert í pokum“
„Spurning hvort einhver sé fastur í gámnum“
„Ég hef hringt í Rauða Krossinn þegar svona hefur verið og beðið um að láta tæma. Hefur reyndar sjaldnast verið svarað, en hef þá sent skilaboð í gegnum fb og fékk viðbrögð þar“
„Fólk er að fara þarna hálft ofan í gáminn og týna upp föt til að nota. Sá kellingu þarna um daginn í slíku“
„Þeir eru líka alltaf fullir í Grafarholtinu þannig að ég held að Rauði Krossinn sé bara ekki fær um að sinna þessu. Það ætti að fjarlægja þessa gáma þetta er ömurlegt“
„Er þetta ekki eftir þá sem eru að skríða ofan í gáma og leita að fatnaði? Henda svo upp úr. Búið að vera umræða um þetta og kvarta yfir því að fólk sem að fara og grisja úr þessum gámum“
„Það hefur sýnt sig í fleiri hverfum að einhverjir Íslendingar kunna ekki að fara með svona þjónustu. Endar oftast með því að gámarnir eru fjarlægðir og koma ekki aftur“
„Hringdi í Rauða krossinn i fyrradag út af svona fullum gámi við Spöngina“
„Ekki má nota plastpokar núna og ef að bréfpokar er notaðir þá gera þeir ekki mikið gagn“
„Fólkið getur sett fötin í svarta bílinn búin að vera þarna í 3 mánuði númerslaus“
„Það hefur nú einn dáið við þetta“


