Sigurbjörn Arnar Jónsson bílstjóri er í dag hoppandi kátur að komast aftur af stað í vinnu sinni sem legið hefur niðri í 9 mánuði vegna Covid-19. Greinilegt er að ferðaþjónustan er að byrja að taka við sér eftir erfiða tíma en Sigurbjörn ekur bílaleigustrætisvagninum við Keflavíkurflugvöll. Í dag ók hann vagninum í fyrsta sinn eftir langt hlé.
Það hefur ekki farið framhjá nokkrum að sóttvarnartakmarkanir hér á landi vegna Covid-19 hafa drepið niður ferðaþjónustuna og þar með strætóakstur Sigurbjörns. Hann var hins vegar skælbrosandi í dag þar hann tilkynnti að hann væri aftur farinn af stað. Það gerði hann í færslu á Facebook í fjölmennum hópi, Landið mitt Ísland:
„Ein af táknmyndum ferðaþjónustunnar, bílaleigustrætòinn við flugstöðina, hòf akstur í morgun eftir 9 mánaða stopp. Nú fyrst byrjar bransinn.“
Fjölmargir fagna áfanganum og gleðjast með Sigurbirni. Árni er einn þeirra. „Var þetta ekki góð tilfinning loksins? Vonandi er að birta yfir öllu,“ segir Árni.
Og Vilmundur nokkur kætist einnig. „Fulla ferð kallinn. Gangi þér allt í haginn,“ segir Vilmundur.

