Fimmtudagur 5. mars, 2026
-0.2 C
Reykjavik

Sigríður Á Andersen: „Er þetta maðurinn sem vildi loka landamærum Íslands með ofbeldi?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi ráðherra, skaut föstum skotum á Hr. Hnetusmjör vegna ferðalags hans til Lundúna.

Sigríður deildi frétt frá mbl.is á Twitter, af ferðalagi Árna Páls Árnasonar eða Hr. Hnetusmjörs eins og hann kallar sig og kærustu hans, Söru Linn­eth Castañeda til Lundúna. Í fréttinni kemur fram að þau hafi farið í langþráð foreldrafrí áður en annað barn þeirra kemur í heiminn en settur dagur er í Janúar. Fyrir eiga þau soninn Björgvin Úlf. Þá nýttu þau einnig ferðina til að vera við útskrift systur Hr. Hnetusmjörs, í Derby.

Sigríður skaut á rapparann og spurði hvort þetta væri maðurinn sem vildi loka landamærunum með ofbeldi. „Altso… Er þetta maðurinn sem vildi loka landamærum Íslands með ofbeldi? Fer núna úr eldrauðu Íslandi og hittir kannski fólk frá löndum þar sem nýgengi smita er mjög lágt.“

Er fyrrverandi ráðherrann að vitna í orð Hr. Hnetusmjörs frá því í fyrra. „Hversu oft þurfa íslenskir ríkisborgarar að loka sig af á meðan túristar þykjast fara í sóttkví? Hversu mörg afbrigði inn um landamærin til að við gefum skít í ríkisstjórnina? Við erum greinilega ekki í þessu saman.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -