Föstudagur 6. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Sif berst hetjulega til að lengja líf sonar síns:„En það hlustar enginn, ekki nokkur einasti maður“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sif Hauksdóttir segist aðeins hafa glugga upp á örfáa daga til að lengja líf sonar síns. Henni líður eins og hún haldi á tímasprengju og er virkilega sár yfir því að hér á landi hlusti ekki nokkur maður á sig.

Sonur hennar þarf lífsnauðsynlega að komast í lyfjarannsókn til Kanada en þangað fær hann ekki að ferðast án bólusetningar. Sif segist hafa alls staðar komið að lokuðum dyrum og hún fái hvergi áheyrn hjá neinum sem geti hjálpað henni.

„Ímyndaðu þér að til þín sé hent tifandi tímasprengju, sem er líf sonar þíns. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst þér að eiga við einhverja víra og lengja tímann á tímasprengjunni. Svo kemur Covid og þú heldur ennþá á þessari sprengju,“ segir Sif.

Nú hefur Sif verið sagt að til að lengja líf sonarins verði hún að komast með hann sem allra fyrst til Kanada. Til þess að tímasprengja móðurinnar springi ekki þurfi að bólusetja drenginn hið allra fyrsta.

„En það hlustar enginn, ekki nokkur einasti maður. Baldur þarf bólusetningu á næstu 5 dögum eigi hann að eiga möguleika á að geta komist til Kanada. Komist hann ekki til Kanada á næstu mánuðum verður þessum aukatíma sem þér virtist hafa tekist að næla í, kippt frá okkur aftur.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -