Þriðjudagur 17. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Sérfræðingur í varalestri leysir gátuna – Þetta er það sem Jón Guðni landsliðsmaður sagði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Til að komast nær því hvað Jón Guðni Fjóluson, landsliðmaður Íslands í knattspyrnu, sagði til þeldökkan mótherja í sænsku úrvalsdeildinni leitaði Mannlíf til sérfræðings í varalestri. Myndbrot af landsliðsmanninum hefur verið á fleygiferð um samfélagsmiðla þar sem ljóst er að Jón Guðni hreytir einhverju í andstæðing sinn í knattspyrnuleik.

Mannlíf sagði frá vangaveltum fjölmargra í þá veru að Jón Guðni hafi mögulega látið út úr sér rasísk ummæli. Mannlíf lagði engan dóm á hvað landsliðsmaðurinn sagði í hita leiksins en leitaði þess í stað til íslensks sérfræðings í varalestri.

Viðkomandi er vanur varalestri og var beðinn um að rýna í myndbandið af Jóni með það fyrir augum að greina hvað það er sem hann segir við mótherja sinn. Niðurstaða sérfræðingsins er eftirfarandi:

„Mér sýnist þetta vera sænska fan dig eða fokkaðu þér eins og sumir íslendingar segja.“

Jón Guðni er 31 árs gamall varnarmaður og uppalinn Frammari og hefur leikið 17 landsleiki fyrir Íslands hönd. Jón Guðni hefur átt farsælan feril og er án efa meðal bestu varnarmanna Íslendinga í dag. Hann hefur lengi verið atvinnumaður og hefur til að mynda leikið með Brann í Noregi, Krasnodar í Rússlandi, og með sænsku félögunum Sundsvall og IFK Norrköping.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -