Séra Önundur S. Björnsson er ekki sáttur við umfjöllun íslenskra fjölmiðla af málum Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrrverandi aðstoðarlandsliðsþjálfa karla í knattspyrnu. En eins og kom fram í nánast öllum fjölmiðlum í dag þá virðist uppsögn Eiðs Smára tengjast áfengisneyslu, þótt ekkert staðfest um það hafi komið fram:
„Það er fátt sem mig svíður jafn mikið undan og fréttaflutningur af persónulegum harmleik nafngreindra einstaklinga. Í dag hafa allir landsins fjölmiðlar keppst við að segja frá starfslokum aðstoðarþjálfara Ísl. landsliðsins, tilgreint, má segja, í smáatriðum ástæður starfslokanna og þar með níðst á ömurlegan hátt á viðkomandi persónu – og ekki aðeins hans persónu, heldur allri hans fjölskyldu; börnum, eiginkonu foreldrum og öllum þeim sem hann er kær, og þeir eru mýmargir, enda hefur þessi drengur staðið í framvarðarsveit ísl. knattspyrnu um áraraðir.“
Og Önundur er ekkert að skafa utan af hlutunum og segir einfaldlega og skrifar það sem honum býr í brjósti:
„Svei ykkur smekklausu og taktsnauðu fjölsmiðlum!!! Mig langar til að beina því til ykkar, góðu vinir á Fb, að þakka þessum unga manni hans framlegð til ísl. knattspyrnu og samfélagsins almennt um leið og við/ég bið góðan Guð um að styðja hann og styrkja og leiða hann út úr þeim erfiðleikum sem hann er sagður eiga í.“

