Fimmtudagur 15. október, 2026
5.8 C
Reykjavik

Sendiherra hreifst af útliti Bjarna og segir hann bæði háan og myndarlegan

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Suzuki Ryotaro, nýr sendiherra Japans á Islandi, hreifst af útliti Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, og segir ráðherrann íslenska bæði hágvaxinn og myndarlegan. Vel fór á með þeim á fundi í dag.

Ryotaro sendiherra birti Twitter-færslu eftir fundinn þar sem hann birti jafnframt mynd af þeim Bjarna saman. Þar segir hann:

„Ég hitti þennan mann á skrifstofu hans í dag. Eins og sjá má á myndinni, þá er hann virkilega hávaxinn og myndarlegur!! (og gáfaður auðvitað). Standandi við hlið hans virka ég mjög lítill.“

Af fundi þeirra í dag.

Bjarni deilir og svarar tísti sendiherrans á þá vegu að ánægjan hafi verið öll sín og „þú ert nú ekki svo slæmur sjálfur!“

Ryotaro bætti svo síðar við færslu sína eftirfarandi: „Þér kann að líka við hann eða ekki. Það er þér í sjálfsvald sett. Það er bara hluti starfs míns að hitta þessa stjórnmálamenn og ráðherra.“

Alda nokkur svarar síðan viðbót sendiherrans: „Það má segja ýmislegt um Bjarna en hann er með lýtalaust hár sama hvað,“ segir Alda.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -