Þriðjudagur 17. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Sara flúði til Danmerkur vegna veikinda: „Fokkings íslenska kerfi!“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sara Stefánsdóttir skrifar athyglisverðan pistil á samfélagsmiðli og segir að „sumarið hefur verið mikill rússíbani hjá okkur, vegna veikinda.

Ég hafði fundið fyrir miklum einkennum hátt í hálft ár og ákvað að leita læknis á einkarekinni stofu a Íslandi; fæ þar mjög góða skoðun og þjónustu; fékk þau svör að búið væri að útiloka í raun allt nema krabbamein,“ segir Sara og bætir við:

„Mér var jafnframt sagt að biðin eftir útkomu úr þeirri sýnatöku gæti tekið allt frá þremur mánuðum og allt upp í níu mánuði. Ég sagðist ekki treysta mér í þá bið og þessa óvissu,“ segir hún og „ég hafði því samband við frænda minn sem búsettur er í Danmörku og sagði honum hver staðan væri: Og hvort möguleiki væri á því að koma til hans og fara í sýnatöku úti.“

Frændi Söru kannaði málið fyrir frænku sína og í kjölfarið „fæ ég tíma innan tveggja daga á einkarekinni stofu í Óðinsvéum.“

Sara var ekki lengi að hoppa upp í næstu flugvél til Danmerkur.

„Ég flýg út, fer í tíma, og fæ einhverja þá bestu þjónustu sem ég hef fengið og innan tíu daga er búið að tvískoða sýnin og niðurstaða komin!“

- Auglýsing -

Sara spyr einfaldlega:

„Hvað er að íslenska kerfinu!? Ég borgaði fjörutíu og tvö þúsund fyrir tímann í Danmörku sem mér finnst algjörlega þess virði, í stað þess að lifa í ömurlegri og taugatrekkjandi óvissunni.“

Og Sara hefur ákveðið „að gera þetta annað hvert ár í stað þess að lifa við óvissu; hræðslu og ótta. Fokkings íslenska kerfi!“ segir hún að lokum.

- Auglýsing -

Athugasemdarkerfið á samfélagsmiðlinum logar af reiði út í Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og henni eru ekki vandaðar kveðjurnar.

Arndís Ósk Hauksdóttir segir að „Svandís er búin að rústa heilbrigðiskerfinu. Líka svo að sérfræðilæknar geta ekki komið heim aftur.“

Auður Hermannsdóttir „á bara ekki til orð, að konur flýji land til fá eðlilega læknisþjónustu“

Og Ásta María Sigurðardóttir hrósar Söru og segir:

„Vá, gott hjá þér Sara, þetta þarf að fréttast, það er náttúrulega skandall að konur þurfi að fara úr landi til að fá þjónustuna sem heilbrigðiskerfið okkar á að veita.“

Þá tjáir Ragnhild Hansen sig um málið og segir:

„það er nú kannski það sem heilbrigðiskerfið hér biður eftir; að konur komi sér annað á eigin kostnað. Veit að óvissan er hryllileg en það má ekki nokkurra hluta vegna, og upp á framtíðina að gera að sleppa heilbrigðiskerfinu á Íslandi við að standa sig; þá gætu líka aðrar deildir heilbrigðismála farið að leika sama leikinn. Það á að krefjast forgangsröðunar í heilbrigðismálum en ekki forgangsraða gæluverkefnum stjórnmálamanna.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -