Móðir Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins, náði ekki endum saman þrátt fyrir að vinna 10 klukkustunda vinnudag. Fátæktarsárið ekki enn gróið.
Sanna skrifaði hjartnæman póst á Facebook í gær þar sem hún rifjast upp þegar þær mægður voru heimilislausar.
„Ég hringdi í mömmu þar sem ég er að undirbúa mig fyrir viðtal og spurði hana hvað leigan hafði veri hátt hlutfall af ráðstöfunartekjum“ segir Sanna í upprifjuninni. Hún heldur áfram „Mig minnti að það hefði komið fram í viðtalinu og þarna var það. Leiga rúmlega 50.000. Útborguð laun um 110.000 fyrir meira en tíu tíma vinnudag, á þeim stað sem við bjuggum á þá. Þ.e.a.s. leigan var um 45% af ráðstöfunartekjum. Það er talið eðlilegt ef það er um 25% af ráðstöfunartekjum.“ Þá segir Sanna að móðir hennar hafi unnið á leikskóla og einnig skúrað annarsstaðar. Sanna segist ekki geta ímyndað sér líðan móður sinnar eftir allt þetta en segir svo „en svo ég tali fyrir mitt leyti þá hef ég ekki fundið nógu sterkan plástur til að láta sár fátæktar gróa.“
Sanna Magdalena líkur upprifjun sinni með spurningu „hversu mörg börn og foreldrar þeirra ætli séu í þeirri stöðu að búa ekki við öruggar húsnæðisaðstæður?“
Sanna var í hjartnæmu kvöldviðtali Mannlífs í gær.

