- Auglýsing -
„Ég bý núna í Kanada. Ég flutti út eftir að þau höfðu rústað orðspori mínu. Það treysti mér eða trúði enginn. Ég gat ekki sótt um störf, íbúðir né skóla. Öllu var hafnað,“ segir McKenzie Sandra Ward sem upplifði líkamlegt og andlegt ofbeldi í tæp fjögur ár á fósturheimili á Suðurnesjum.
Hún segir að fósturforeldrar sínir hafi úthrópað hana í bæjarfélaginu sem geðsjúka, fíkniefnaneytanda og hóru. Allir hundsuðu beiðni Kenzie um hjálp, jafnt skólinn og barnaverndaryfirvöld. Hún segist hafa verið algjörlega á valdi fólks sem níddist á henni og neitað henni um grundvallaratriði eins og þvotta og þrif. Þau tóku hurðina af hjörum herbergis hennar og neituðu henni um síma svo hún gæti ekki rætt við móður sína né tilkynnt ofbeldið. Áreitnin varð einnig kynferðisleg.
Stálu aleigunni
„Ég bjó í Kvennaathvarfinu í nokkra mánuði áður en ég flutti út. Fósturfaðir minn hafði tæmt allan bankareikninginn minn og ég átti ekkert. Ég er með bankayfirlitin mín og þetta voru fleiri hundruð þúsund krónur sem að þau stálu af mér“.
Kenzie líður vel í Kanada en langar að koma aftur heim til Íslands. „Ég bjó á Íslandi í 12 ár þannig að Ísland er mér meira heimili heldur en Kanada. Ég er líka trúlofuð og á litla stelpu eitthvað sem mér var sagt að myndi aldrei gerast. Mig langar alltaf að flytja aftur heim“.
Kenzie segir átakanlega sögu sína í heild í Kvöldviðtali Mannlífs.


