Fimmtudagur 8. október, 2026
6.8 C
Reykjavik

Sævar Þór um vinnubrögð Vilhjálms í máli Ingós: „Nánast öllum slíkum málum vísað frá“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögmaðurinn Sævar Þór Jónsson leggur sitt til málanna í máli málanna á Íslandi í dag; kæru Ingós Veðurguðs á hendur fimm einstaklingum sem hann sakar um óviðeigandi ummæli um sig, setta fram af lögmanni hans, Vilhjálmi Vilhjálmssyni:

„Smá innleg í umræðuna og lögfræðileg praktík,“ segir Sævar Þór, sem á og rekur lögmannsstofuna Sævar Þór & Partners og er með réttindi til að flytja mál fyrir Landsrétti, og bætir við:

 „Vegna kærumála gegn einstaklingum sem hafa haft ummæli um tiltekinn tónlistarmann, þá má benda á að lögreglan hefur í nánast öllum slíkum málum vísað kæru frá og litið svo á að um einkaréttarlegan ágreining sé að ræða“ og sendir í kjölfarið pillu á lögfræðing Ingós, Vilhjálm Vilhjálmsson:

„Þetta ættu lögmenn að vita og því tilgangslaus og óskiljanleg taktík að fara þá braut.“

Andrea Ólafs skrifar athugasemd við færslu Sævars Þórs og spyr:

„Elsku Sævar Þór, ertu með þessu að segja að það þýði barasta ekkert fyrir manneskju að koma fram með slíkar ásakanir eða kærur því að réttarkerfið muni vísa þeim frá hvort sem er?“

- Auglýsing -

Bætir við:

„Er þá niðurstaða samfélagsins sem þarf að eiga við slík mál að þeir sem brjóta á öðrum muni komast upp með það og það skipti í raun engu máli hvort málið er kært eða ekki?“

Sævar Þór er ekki lengi til svars og segir að „þessum málum er oftast vísað frá hjá lögreglu þar sem ágreiningurinn er einkaréttarlegs eðlis. Það er ekki þar með sagt að fólk geti ekki og eigi ekki að sækja rétt sinn. Það er þá gert í einkamáli. Þetta er bara praktík.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -