Haldi ákveðin þróun áfram gætu sæðisfrumur hjá mönnum verið nær alveg horfnar árið eftir 24 ár, eða árið 2045, en þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.
Og ástæðan?
Fyrst og síðast er ástæðan notkun á efnum sem eru skaðleg hormónastarfsemi líkamans, en rannsóknir í Evrópu, Norður-Ameríku og Ástralíu frá 1973 til 2011 sýna að meðalfjöldi sæðisfruma hefur lækkað um sextíu prósent á tímabilinu.
Þess má geta að mikið var rætt um skaðsemi pfos-efna á árum áður, en það var notað í teflon efni á steikingarpönnum til að hrinda í burt fitu og vatni. Rannsóknir í Bandaríkjunum hafi sýnt fram á að þessi efni hafi haft áhrif á hormónastarfsemi fólks sem bjó nálægt þeim verksmiðjum þar sem pönnurnar voru framleiddar.
Í sumum raftækjum eru svokölluð eld-tefjandi efni og þau geta einnig haft áhrif á hormónastarfsemi; efni sem seinka því að það kvikni í eldfimum raftækjum ef þau hitna mikið.
Þessi efni sem eru sæðisfrumum svo hættuleg finnast víða; til dæmis í þvottaefni, snyrtiefnum, raftækjum, textíl og málningu og þau geta líka orsakað lága fæðingarþyngd og legslímuflakk og fjölblöðrueggjastokkaheilkenni hjá konum.

