Fimmtudagur 8. október, 2026
6.8 C
Reykjavik

Róberti virkilega brugðið í Lúxemborg: „Leið eins og ég hefði séð draug”

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íslendingur staðsettur í Lúxemborg skildi ekkert í því þegar hann sá vél Icelandair stadda þar. „Mér leið eins og ég hefði séð draug áðan þegar ég sá þessa lenda hér í Lúxemborg! Getur einhver frætt mig um hvað hún var að gera hér og því hún er nú á leiðinni til Zagreb…af öllum stöðum?“ Skrifaði hann Róbert í Facebook hópinn Fróðleiksmolar um flug.

Icelandair býður ekki upp á áætlunarflug til Lúxemborgar og heldur ekki til Zagreb og því ekki að undra að Róbert hafi orðið undrandi að sjá þotu flugfélagsins stadda þar.

Ekki stóð á svörum. Veigar nokkur var fljótur að skíra hvernig stæði á þessu.

„Ferja fótboltalið sem eru að keppa Evrópukeppni. Breiðablik í Lux Valsarar halda áfram til Zagreb.“

Sem er hárrétt en Breiðablik leikur á morgun þann 8. júlí gegn Racing FC Union í Lúxemborg. Leikur Vals í Króatíu er síðan í dag gegn Dinamo Zagreb.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -