Hanna Björg Vilhjálmsdóttir lenti í því óskemmtilega atviki að verða fyrir óhuggulegu símaati nýverið. Hringt var í hana og þóttist hringjandinn vera rannsóknarlögreglumaður hjá Lögreglunnij á höfuðborgarsvæðinu. Hanna Björg var mikið í fjölmiðlum í haust í tengslum við KSÍ málið.
Sjá einnig: Konan sem felldi KSÍ: Hanna Björg býður sig fram til formennsku í Kennarasambandi Íslands
„Í gær lenti ég í þeirri óþægilegu lífsreynslu að fá símtal frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, þar sem lögreglumaður kynnti sig sem rannsóknarlögreglumann og sagðist vera að boða mig í yfirheyrslu. Þegar ég spurði um hvað málið væri, tilkynnti maðurinn mér að það hefði borist ákæra á mig fyrir meiðyrði og lögreglan ætlaði að bregðast við strax. Mér þótti símtalið skrítið, viðkomandi var óöruggur og hrokafullur í senn, ég sagði við hann að ef ég sæi ekki að hringt væri frá Lögreglunni (sem kom upp á skjáinn í símanum) þá héldi ég að þetta væri gabb. Maðurinn hélt fast við sitt og sagðist vilja fá mig í yfirheyrslu í næstu viku – á miðvikudaginn um hádegið, en neitaði að segja um hvað málið væri og hver væri að kæra mig.“
Hanna Björg viðurkennir að henni hafi verið ansi brugðið.
„Ég fór aðeins á hliðina verð ég að viðurkenna, samstarfskona mín hringdi í lögfræðing sem hún þekkir og spurðist fyrir hvort þetta gæti staðist, hann setti strax spurningamerki um að lögreglan væri að rannsaka meiðyrðamál og að mér hefði ekki verið tjáð að hafa lögfræðing með. Sjálf setti ég auðvitað spurningamerki við að fá engar upplýsingar. En löghlýðna konan sem ég er var ekki reiðubúin að afgreiða þetta sem gabb. Svo ég hringdi áfram og spurðist fyrir og enginn gat útilokað að þetta væri raunverulegt. Í morgun hringdi ég svo á lögreglustöðina og fékk að vita að það ynni enginn með því nafni sem viðmælandinn kynnti sig með hjá lögreglunni.“
Velti hún því svo fyrir sér í lokaorðum sínum hvort langt sé ekki seilst til að þakka niður í henni.
„Einhver hafði sem sagt fyrir því að hringja í mig í gær, með aðstoð tækni, og láta mig trúa því að ég væri með ákæru á hendur mér hjá lögreglunni og yfirvofandi rannsókn væri á mér.
Langt seilst til að þagga niður í konu? Tja – þessi hér spyr sig.“

