Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra ráðast á launafólk og verkalýðsforystuna til að breiða yfir sín eigin hagstjórnarmistök.
Ragnar gagnrýnir harðlega ákvörðun bankans um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentur, upp í tvö prósent.
Í allt er þetta er fjórða stýrivaxtahækkunin frá því í maí síðastliðinn.
Fram kemur í yfirlýsingu peningastefnunefndar að verðbólguhorfur hafi versnað meðal annars út af hækkun launakostnaðar.
Ásgeir sagði í dag að launahækkanir á almennum vinnumarkaði væru ekki í takt við efnahagslegan veruleika og Ragnar Þór gagnrýnir þennan málflutning:

„Hann er einfaldlega ekki boðlegur, að reyna að skella skuldinni á aðra fyrir eigin mistök og í rauninni þá ábyrgð sem að seðlabankastjóri hefur, og Seðlabankinn sem að ber ábyrgð á því að halda hér verðstöðugleika en hefur algjörlega brugðist hlutverki sínu og ætlar núna að fara að skella skuldinni á vinnandi fólk. Hér er verið að keyra upp meðal annars stýrivexti og hækka vexti út af ytri áhrifum. Út af hrávöruverðshækkunum, olíuverði og ýmsum öðrum þáttum sem að stýrivaxtahækkanir hafa ekkert nema verri áhrif á.“
Ragnar Þór segir að bankinn hafi ekki nýtt möguleika sína til að bregðast við hækkunum á fasteignamarkaði þegar vaxtalækkunarferlið hófst á sínum tíma:
„Seðlabankinn hafði öll þau tól til þess að bregðast við þessu ástandi sem hann er núna að kenna verkalýðshreyfingunni um,“ segir Ragnar og nefnir að viðbúið sé að húsaleiga og afborganir af fasteignalánum hækki á komandi mánuðum, mögulega um tugi þúsunda króna á mánuði:
„Við munum sækja hverja einustu krónu sem er búið að leggja núna á okkar félagsmenn í næstu kjarasamningum. Það eru skilaboðin og það er svar okkar við þessum endalausu hótunum sem við erum að fá frá Seðlabankanum og seðlabankastjóra,“ segir Ragnar Þór að lokum.
Heimild: RÚV

