Miðvikudagur 18. febrúar, 2026
-3.2 C
Reykjavik

Pólitískir andstæðingar VG deila draumi Svandísar og geta ekki hugsað sér heppilegri andstæðing

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ólafur Arnarson ritar áhugaverðan pistil um pólitík tengda Covid og stjórnarskránni „nýju“ sem ekkert bólar á, og nefnir að VG – vegna heimsfaraldursins – hafi fengið mikla athygli sem hefur að hans mati gert það að verkum að flokkurinn hefur komið „þokkalega út í skoðanakönnunum.

Ólafur Arnarson.

Gott gengi flokksins er því að „þakka að frá því veiran hóf innreið sína hér á landi hefur nær engin pólitísk umræða farið fram.“

Ólafur beinir kastljósinu að því að „forsætis- og heilbrigðisráðherra hafa stöðugt stillt sér upp við hlið þríeykisins og baðað sig í ljómanum sem af því stafar,“ en að mati Ólafs sér nú líklega „fyrir endann á því. Nú hefst stjórnmálaumræða að nýju. Mörg vandræðamál VG munu því fá eðlilega athygli.“

Að mati Ólafs kemur forsætisráðherrra, Katrín Jakobsdóttir, „óneitanlega löskuð út úr störfum þingsins á þessu kjörtímabili þótt hún njóti vinsælda meðal þjóðarinnar. Hún kom breytingum á stjórnarskrá ekki í gegnum þingið. Var gerð afturreka með málið eftir að hafa leitt það í fjögur ár með engum árangri.“

- Auglýsing -

Hann bendir á að „niðurstaðan varðandi hálendisþjóðgarðinn var mikið áfall fyrir VG, enda ber stjórnarsáttmálinn frá 2017 með sér að flokkurinn hafi fórnað mörgum prinsippmálum sínum í stjórnarmynduninni til að ná því máli fram. Nú situr VG uppi með að hafa svikið mörg hjartans mál kjósenda sinna fyrir hálendisþjóðgarð sem svo ekki verður.“

Ólafur telur að ráðherrar Vinstri grænna muni ekki geta skýlt sér á bak við góða lendingu í veirumálum þjóðarinnar; vegna þess að enginn ágreiningur hafi verið um þau mál í stjórnmálaflokkum landsins, „ef undanskilin er ólund Miðflokksins og sumra þingmanna Sjálfstæðisflokksins, einkum Sigríðar Andersen og Brynjars Níelssonar.“

- Auglýsing -

Og bætir við: „Þeim var refsað í prófkjöri og á tíma leit út fyrir að Brynjar myndi hætta í stjórnmálum en nú hefur honum snúist hugur. Væntanlega hefur flokksforystan, sem vann gegn honum í prófkjörinu, áttað sig á því að án hans og Sigríðar á lista myndi Miðflokkurinn hirða drjúgan hluta fylgis Sjálfstæðisflokksins – ekki bara í Reykjavík heldur í öllum kjördæmum. Veiran getur ekki orðið kosningamál því að ekki er deilt um meðferð á vörnum gegn henni.“

Nú, þegar „Covid-umsátursástandið“ virðist vera í rénum „mun framganga Svandísar Svavarsdóttur í heilbrigðisráðuneytinu verða Vinstri grænum þung í skauti. Ágreiningsmálum á hennar málasviði fjölgar stöðugt. Má þar nefna skimunarklúðrið, deilur við Krabbameinsfélag Íslands, nú síðast ágreining við SÁÁ og átök við sérfræðilækna svo eitthvað sé nefnt.“

Að mati Ólafs kemur forsætisráðherra illa laskaður „eftir þá niðurlægingu sem hún mátti þola í þinginu undir lokin, og Svandísi í illdeilum við stóra hópa. Flokkurinn gæti endað í eins stafs prósentutölu með sex eða sjö þingmenn í stað ellefu í síðustu kosningum. Ekki þyrfti þá að gera ráð fyrir flokknum í næstu ríkisstjórn,“ segir Ólafur og varpar fram þessari spurningu:

„Hvað gerir Katrín þá?“

Ólafur svarar sjálfum sér og segir að hermt sé „að hún hafi leitað eftir áhugaverðum stöðum hjá Sameinuðu þjóðunum, gjarnan hjá UNESCO í París. Virðingarstaða í útlöndum næstu árin yrði kjörin fyrir hana til að búa sig undir að sækjast eftir embætti forseta Íslands þegar Guðni lætur af embætti eftir sjö ár, en hann hefur afdráttarlaust lýst því yfir að hann hyggist ekki sitja lengur en tólf ár.“

Að mati Ólafs gæti „Katrín hæglega fengið góðan stuðning í forsetaframboði ef hún hyrfi fljótlega úr argaþrasi stjórnmálanna og hlýtur í raun að teljast líkleg sem næsti forseti Íslands haldi hún rétt á spilunum.“

Og aftur er spurt, og aftur er svarað:

„Hver gæti þá tekið við VG? Ekki þarf að leita langt yfir skammt. Svandís Svavarsdóttir er eina manneskjan í flokknum sem hefur stjórnmálareynslu til að takast á við slíkt leiðtogahlutverk. Ekki skortir hana sjálfstraustið. Formennska í VG yrði draumastaða fyrir hana.

Pólitískir andstæðingar VG deila þeim draumi með Svandísi og geta vart hugsað sér heppilegri andstæðing en hana.“

Heimild: hringbraut.is

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -