Pétur Skinner getur ekki verið með konu sinn,i Önnu Eler, vegna reglna um framfærslu sem koma í veg fyrir að Anna fá dvalarleyfi á Íslandi. Pétur og Anna hafa ekki hist í þrjá mánuði en þau hafa verið saman í sjö ár, þarf af gift í þrjú. Pétur segir í samtali við Fréttablaðið að honum líði eins og fanga í eigin landi.
Þau hjón kynntust í heimalandi Önnu, Filipseyjum. Hún er lærður grunnskólakennari og lærð í umönnun.
Pétur hefur verið öryrki í hartnær 19 ár og nema mánaðartekjur hans 250 þúsund krónum á mánuði. Útlendingastofnun miðar lágmarksframfærslu við grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar, en upphæðin fyrir hjón nemur rétt rúmum 340 þúsund krónum. Telur Útlendingastofnun að tekjur Péturs séu ekki nægjanlegar til að framfleyta tveimur einstaklingum.
Nægt vinnuafl á Íslandi
Pétur segir að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hafi Önnu ekki tekist að finna sér starf við hæfði á Íslandi. Hefur hún til dæmis sótt um á hjúkrunarheimilum og á Landspítalanum án árangurs. Hún getur dvalið hér á landi í þrjá mánuði í senn en þarf að fara úr landi að þeim tíma loknum. Hún talar góða ensku og er að læra íslensku. Svörin sem þau hjón hafa fengið er að nægt vinnuafl sé á Íslandi og ekki réttlætanlegt að ráða útlending.
Pétur kom heim frá Filippseyjum þann 10. febrúar síðastliðinn og eru því liðnir þrír mánuðir frá því að hann sá eiginkonu sína síðast. Aftur á móti er dýrt að ferðast og hefur Pétur skerta getu til þess vegna örorku sinnar. Hann getur dvalið í landinu í þrjú ár að hámarki en þarf að skrá sig á skrifstofu innflytjenda einu sinni í mánuði. Hann vill ekki hætta á of langa veru á Filipseyjum til að missa ekki bætur frá Tryggingastofnun. Pétur hefur ekki möguleika á að auka tekjur sínar þar sem það myndi skerða greiðslur frá stofnuninni en hann sendir einnig konu sinni hluta af tekjum sínum þar sem hún er atvinnulaus vegna COVID ástandsins á Filipseyjum.
Pétri finnst forkastanlegt að eiginkona íslensks ríkisborgara megi ekki dvelja hér á landi til að leita sér að vinnu eins og hver annar borgari.
„Mér finnst þetta vera skýlaust brot á mannréttindum“
Pétur starfaði í tuttugu ár sem húsasmiður auk þess að vera lærður matreiðslumaður. Hann hálsbrotnaði í bílslysi árið 1995, fékk krabbamein í háls árið 2012 og hefur glímt við ýmis önnur veikindi á við vefjagigt og stoðkerfisvanda.
„Ég byrjaði að vinna í sveitinni tíu ára. Þannig að eftir fjörutíu ára vinnu er mér settur stóllinn fyrir dyrnar með að mega vera með konunni sem ég elska.“
Gefast ekki upp
Anna og Pétur hafa ekki lagt árar í bát og ætla þau í sameiningu að freista þess að finna vinnu fyrir Önnu hér á landi svo hún geti sýnt fram á framfærslu og dvalið hér ótímabundið. Kveðst Pétur vonast til þess að stjórnvöld líti til aðstæðna fólks og jafnvel rýmki aðeins þær reglur sem eru í gildi.
„Mér finnst allavega að það ætti frekar að liðka fyrir því að fólk geti verið hér saman frekar en að setja okkur stólinn fyrir dyrnar,“ segir Pétur Skinner í viðtalinu.

