Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Palli með fallega kveðju: „Fríkað að vera ekki að undirbúa Gleðigönguna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hinsegin dagar hófust 3. ágúst með tilheyrandi litagleði, fögnuði og hamingju. En líkt og í fyrra er engin Gleðiganga vegna kórónuveirufaraldursins, en hún hefði annars farið fram í dag.

Í sárabætur verður þó hátíðardagskrá Hinsegin daga á RÚV í kvöld þar sem frábærir tónlistarmenn munu troða upp, Lay Low þar á meðal og eru kynnar kvöldsins heldur ekki af verri endanum, en það eru þau Felix Bergsson og Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir.

Páll Óskar segir það fríkað, eins og hann orðar það, að vera ekki að undirbúa Gleðigönguna. En í viðtali við Mannlíf í byrjun júlímánaðar, þegar útlit var fyrir að ekkert stæði í vegi fyrir glæsilegri Gleðigöngu sagði hann hana vera sér ofarlega í huga. „Þetta verður sko alvöru partí, gleðiganga með öllu”. Þá sagði hann að nú þyrfti að bretta upp ermar því bæði þyrfti að vinna upp tapað fjör frá í fyrra og halda uppi fjörinu í ár. „Gleði, endalaus gleði og partýhungur. Það er það sem lífið gengur út á.”

Þrátt fyrir vonbrigði yfir að geta ekki enn bætt upp fyrir tapað fjör, lætur Palli ekki deigan síga og skrifar á samfélagsmiðlum sínum.

Elsku hommar, lesbíur, tvíkynhneigðir, trans, pan, intersex, bdsm, kynsegin fólk og aðstandendur okkar. Fríkað að vera ekki að undirbúa Gleðigönguna, annað árið í röð. En munið! Við höfum gengið í gegnum þetta líka. Hlakka til að sjá ykkur öll í fullum skrúða þegar aðstæður leyfa. Gleðilega hinsegin helgi. Ykkar, Palli.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -