Laugardagur 7. mars, 2026
1.8 C
Reykjavik

Páll: Að þingkonur kalli sig „gellur er sambærilegt og að svertingi noti n-orðið um sjálfan sig“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Páll Vilhjálmsson ritar færslu á bloggsíðu sinni sem ber yfirskriftina:

Byrjar svona:
„Þingkona kallar sjálfa sig „gellu.“
Og bætir við:
„Sjálfsupphafning með öfugum formerkjum. Bannorð, neikvætt og lítisvirðandi, auglýsir sjálfstraust að ekki sé sagt hroka.“
Páll segir að það að þingkonur kalli sig gellur sé „sambærilegt og að bandarískur svertingi noti n-orðið um sjálfan sig.“
Tónlistarmaðurinn NAS er stoltur af uppruna sínum og húðlit, og má alveg vera það
Bætir um betur:
„Þeim svarta nægir húðleðrið að öðlast rétt til að uppnefna sjálfan sig. Hvít forréttindakona þarf ekki einu sinni kynþokka til að verða gella að eigin áliti,“ voru lokaorðin Páls að þessu sinni.
Glæsilegar eru þær þingkonurnar Lenya og Rósa Björk, en Páll Vilhjálmsson virðist ekki vera sammála. Mislíkar orðið gellur og telur það sambærilegt n-orðinu
Í færslu sinni linkar Páll á grein er birtist á Smartlandinu góða, þar sem segir meðal annars:
„Varaþing­menn­irn­ir Gunn­hild­ur Fríða Hall­gríms­dótt­ir og Lenya Rún Taha völdu sér báðar hvít­an jakka fyr­ir fund á Alþingi í dag. Er þetta í fyrsta skipti sem þær báðar setj­ast á þing og hef­ur Lenya Rún lýst þing­setu þeirra Gunn­hild­ar sem „gellu-takeo­ver“ á Alþingi.“
Þetta finnst Páli Vilhjálmssyni einum of mikið af því góða.
En Smartandið góða aftur:
Lenya Rún klædd­ist hvítri stutt­buxna­dragt í dag og paraði við hana svart­an rúllukraga; Við stutt­buxna­dragt­ina klædd­ist Lenya svört­um Dr. Martens-skóm en Gunn­hild­ur Fríða valdi hvít­an jakka, svart­ar bux­ur, ljós­brúnt vesti og hvíta fal­lega skyrtu við.
[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -