Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaðamanns Mannlífs hefur enn ekki tekist að ná tali af Páleyju Borgþórsdóttur, lögreglustjóra á Akureyri. Líkt og Fréttablaðið greindi frá fyrr í vikunni hafa blaðamennirnir fjórir ekki enn verið boðaðir í skýrslutöku af lögreglunni á Akureyri vegna máls Páls Steingrímssonar, skipstjóra Samherja. Páley vildi enga upplýsingar veita um málið í samtali við Fréttablaðið. Blaðamennirnir fjórir, voru í febrúar boðaðir til yfirheyrslu af lögreglunni á Akureyri. Upprunalega var talið að yfirheyrslan tengdist umfjöllun þeirra um „skæruliðadeild“ Samherja en í kröfugerð lögreglu kemur fram að meint brot blaðamannanna séu vegna miðlun klámefnis og brot á friðhelgi.
Spurningar Mannlífs til Páleyjar snúa að forgangsröðun mála eftir alvarleika hjá lögreglunni á Akureyri. Samkvæmt skilgreiningu á grunnþjónustu lögreglunnar kemur fram að lögregla skuli forgangsraða rannsóknum eftir alvarleika málsins. Þá snúa spurningar Mannlífs að því hvort lögreglan á Akureyri hafi forgangsraðað rétt þegar kom að yfirheyrslu blaðamannanna vegna meintra brota. Ekki liggur fyrir hvort að brot, sem teljast alvarlegri, hafi verið látin sitja á hakanum vegna yfirheyrslna og rannsókn á meintum brotum blaðamanna. Vert er að taka fram að rannsóknarlögreglumaður frá lögreglunni á Akureyri, gerði sér ferð til Reykjavíkur, til þess að framkvæma yfirheyrslurnar í febrúar.

