Fimmtudagur 15. október, 2026
5.8 C
Reykjavik

Pabbar landsins hafa fengið nóg -„Feður með börn illa séðir?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Faðirinn Matthías Ólafsson er á ferð um landið með konu sinni og ungu barni þeirra. Á ferðalaginu hefur hann ítrekað lent í því að í nýjum fínum veitinga- og söluskálum um landið, eins og hann orðar það, er ekkert skiptiborð á karlaklósettum, en það er hinsvegar alltaf á kvennaklósettunum.

„Mér finnst það senda frekar skýr skilaboð um meint hlutverk kynjanna í umönnun ungra barna. Ég einset mér að útvega mér netföng tengiliða þessara skála til að hafa samband og benda á þörf á úrbótum og hvet ykkur til að gjöra slíkt hið sama, séu þið sama sinnis auðvitað!“ Matthías skrifar um málið í Facebook hópinn Pabbatips.

Spyrja feður sig hvað þeir eigi til bragðs að taka í svona aðstæðum. Sumir vilja meina að þá sé það eina í stöðunni að fara inn á kvennaklósettið á meðan öðrum finnst það ekki vera valkostur.

Bjarni nokkur segir: „Vel gert. Mér finnst að feður ættu að herja á öll svona mál sem halla á feður í landinu.“

„Hiklaust nota kvennasalernið ef ekkert annað er í boði,“ segir annar Bjarni.

Guðmundur: „Vafalítið má víða gera betur en sem betur fer hefur þetta lagast mikið á síðastliðnum 15 árum eða svo.“

- Auglýsing -

Halldór skrifar: „Ég stóð í þessari baráttu þegar ég var með mín börn lítil, sýnist þetta vera á sama stað 14 árum seinna. Ég spurði bara varfærnislega um leið og ég bankaði á kvennasnyrtingunni hvort mér væri óhætt að skipta á bleyjubarni hérna inni. Fékk alltaf jákvæðustu viðbrögð í heimi frá kvenkyns gestum snyrtinganna. Sumar sem komu inn á meðan á atburðinum stóð kíktu aftur á hurðina og brostu svo bara.“

„Þetta snýst ekki um viðhorf kvenna til þessara athafna okkar pabbana inni á kvennaklósettum. Þær eru aldrei með leiðindi gagnvart þessu, nema síður sé. Heldur mikið frekar viðhorf staðarins til feðra, sem er óþolandi.
Ég spyr stundum hreinlega á staðnum hvort feður með börn séu illa séðir. Fólk fattar seint hvað maður á við og verðum þeim um skömmustulegra þegar maður útskýrir þetta. En látum vita, dropinn holar steininn,“ skrifar Óskar, sem greinilega er búinn að fá sig fullsaddan af þessu, skiljanlega.

Sveinn: „Má líka nefna að mínu mati að þetta ætti líka að snerta á réttindabaráttu kvenna hvað varðar að brjóta upp kvenna- og karlahlutverk/störf, í þessu tilfelli að konan eigi að hugsa um þarfir barnsins en ekki faðirinn, það er hér að skipta á barninu, sem er jafn mikið hlutverk pabbans eins og mömmunnar.“

- Auglýsing -

„Þetta er óþolandi,“ segir Garðar.

Fjöldi feðra hefur tekið þátt í umræðunni og eru þeir allir á sama máli, úrbóta er þörf í þessum efnum.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -