Út af hörðum sóttvarnareglum hér á landi vegna Covid 19 verður hin stundum umdeilda orðuveiting forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á nýársdag með sama móti og um síðustu áramót.

Fyrir ári síðan var fólk orðið ágætlega bjartsýnt á að veiran væri allt að því sigruð; annað hefur komið nokkrum sinnum á daginn.
Orðuveitingin fer fram á Bessastöðum á nýársdag eins og venjulega – hefur verið þannig frá því að elstu menn og konur muna; hefst klukkan 13 og lýkur klukkan 16:30. Þetta staðfesti Sif Gunnarsdóttir forsetaritari.

Sérstök athöfn verður fyrir hvern og einn er orðu hlýtur.
Í kjölfarið verður listi yfir það fólk sem sæmt (og á vonandi og væntanlega skilið) verður fálkaorðunni birtur á heimasíðu forsetaembættisins – mynd af hverjum og einum.
Í fyrra sæmdi Guðni forseti fjórtán einstaklinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.
Verður athyglisvert og spennandi að sjá hverjir hljóta orðu á nýársdag 2022.

