Rithöfundurinn, leikskáldið og baráttukonan Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur um langt árabil staðið í eldlínunni í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi; nýtur mikillar virðingar og er þekkt fyrir að gefast aldrei upp.
Baráttukona.
Hún er líka tilbúinn að opna sjálfa sig upp á gátt, og það gerir hún svo sannarlega í færslu á Instagram-síðu sinni.
Þar opnar Þórdís Elva sig um hjónabandserfiðleika, en Þórdís Elva og maður hennar, Víðir Guðmundsson, hafa gengið í gegnum erfiðleika.
Í færslunni fjallar Þórdís um hvernig hjónin unnu sig í sameiningu í gegnum vandræðin og ákváðu að búa hreinlega til nýtt samband:
„Ég deili þessu til að minna ykkar á, sem eruð í erfiðleikum í sambandinu, að þið eruð alls ekki ein. Hjónaband okkar var búið fyrir einu ári.“
Bætir við: „Jafnvel bestu sambönd geta hrunið; og til að varðveita orku hvers og eins eiga þau uppgefnu hjörtu það til að loka sig af þegar lausnin er andstaðan: Það að opna sig upp á gátt.“
Segir:
„Í fyrsta skipti í fjöldamörg ár töluðum við almennilega saman; vitum betur en svo að loka tilfinningar okkar inni þegar hlutirnir verða erfiðir og vitum líka að engu í lífinu er tekið sem sjálfsögðum hlut.“
Þórdís Elva bendir á í lok færslu sinnar að þau hjón sem hugsanlega eru á sama eða svipuðum stað séu svo langt því frá ein um það:
„Ég veit að þetta kann að hljóma frekar óhugnalega, en ef þú kemur í veg fyrir að hjónabandið eða sambandið brenni til kaldra kola, þá þarftu ekki að rísa upp úr öskunni.“

