„Ég geri ráð fyrir því miðað við útganginn sem þú skyldir heimilið mitt eftir í að þú sért því miður ekki á góðum stað í lífinu; að öllum líkindum bara alls ekki, líklegast eins langt frá því og hugsast getur,“ skrifar Þóranna Friðgeirsdóttir í færslu á Facebook. Færslan er ætluð innbrjótsþjófi sem braust inn á heimili hennar.
Óð inn á skítugum skónum
„Þú óðst inn á mjög skítugum skóm sem skyldu eftir sig mikla drullu, blauta mold sem svo þornaði út um allt eldhús þar sem hvert fótspor fer ekki á milli mála. Ég sá að þú lést ekki duga að reyna að tæma aðeins neðriskápana og uppþvottavélina heldur nýttir þér fína ljósbleika velúr-stólinn minn einnig til að aðstoða þig við að ná upp í efri skápana. Það sést á skófarinu í stólnum að þú ert ekki lítill maður, allavegana ekki líkamlega. Þú lést þér ekki nægja heldur að vaða um á skítugum skónum bara útum allt eldhús því fallegu ljósbleiku motturnar mínar tvær inn í stofu og á ganginum þurfa sérstaka hreinsun“.
Hún segist velta fyrir sér hvort honum hafi ekki í alvöru þótt nægja til að taka nýja 65 tommu sjónvarpið hennar því svo virðist sem hann hafi einnig reynt að taka sjónvarpshillurnar niður.
„Ég skil þig alveg, þetta er mjög flott saman, enda er ég ný búin að kaupa þetta bæði og setja upp“
Rann bjórinn ljúft niður?
„Bjórinn sem þú fékkst þér rann líklega ljúft niður, hefðir raunverulega alveg mátt fá þér samlokuna sem var tilbúin inni ísskáp líka. En það var óþarfi að sulla bjórnum svo niður inn í barnaherbergi litlu strákanna minna þar sem að þú fórst með skítugar krumlurnar þínar ofan í töskur, dót og föt vinkonu minnar sem var að gista hjá mér. Er tölvan hennar eitthvað að nýtast þér ? Eða snyrtidótið hennar, fötin, skartgripirnir og skvísutöskurnar ? Sé þig ekki fyrir mér sem klæðskipting, en hvað veit ég. Eða kannski áttu kærustu sem vantaði fínt dót!! Því ég veit að það verður allavegana erfitt fyrir þig að selja notaðar snyrtivörur fyrir dökkt hörund. En takk fyrir að láta skáp drengjanna minna vera!“
Þóranna pælir í hvað innbrotsþjófurinn hyggist gera við þau 50-70 naglalökk sem þjófurinn nýtti til að fylla skólatösku sonar hennar og stela. „Já eða snyrtidótið? Hárteyjurnar? Ég skil að þú getir selt eitthvað af skartgripunum mínum, en ólíklegt að það sé markaður fyrir notað snyrtidót! En hvað veit ég svo sem“.
Fengum góða lýsingu
„Blessunarlega hefur hugarástand þitt ekki vera með góðu móti því þér yfirsást herbergi dóttur minnar og allar hennar gersemar voru látnar í friði, mikið er ég þakklát fyrir að hún hafi ekki verið heima og fyrir að ekkert var hreyft við hennar dóti. Þó við söknum rafmagnshlaupahjólsins, sem hún notar mjög mikið“.
Þóranna spyr hann hvort hann hvort hann hafi ekki verið truflaður. „Svolítið scary þegar hringt er dyrabjöllunni eða þegar það var bankað á hurðina og kallað „Þóranna”? En hún sá þig, svo við fengum góða lýsingu á þér kæri þrjótur.
Þú gleymdir samt helmingnum af því sem þú ætlaðir þér að taka í kjallaranum og lyftunni… eða ætlaðir þú að koma aftur ?! Þar sem partur af því sem þú ætlaðir þér að taka fannst. Þar á meðal sjónvarpið. Hvernig fórstu með sjónvarpið niður ? Varstu einn ? Það lítur allavegana út fyrir það miðað við kám, fingraför, brot og hnjask á sjónvarpinu, þá var þetta smá bras er það ekki ? Ég skal samt viðurkenna að eins þakklát og ég er fyrir að partur af dótinu hafi fundist, þá ertu samt eiginlega búin að skemma það allt fyrir mér, eins heimilið mitt“.
„Allt í einu er það bara ekki eins hugguleg tilhugsun og það var“
Þóranna segir hafa verið rótað í fataskápum og öllum sundfötum. „Varst að ferja allt með teppunum okkar sem við notum til þess að kúra með upp í sófa?. Allt í einu er það bara ekki eins hugguleg tilhugsun og það var.
„Ég er sterk“
„Þú raufst minn griðastað og saurgaðir heimilið mitt, réðst inn á mína friðhelgi og braust. Burt séð frá öllu dótinu sem þú tókst og skemmdir þá tókstu frá mér öryggi sem engar tryggingar munu geta dekkað.
Þóranna er ofsalega þakklát öllum lögreglumönnunum sem komu að málinu og aðstoðuðu hana í geðshræringunni. „Ég óska þess að þeir finni þig, ekki til þess að „skamma” og refsa… heldur til þess að þú fair hjálp. Ég vona svo innilega að þú fáir og þyggir þá aðstoð sem þú þarft og komir þér á beina braut. Því þetta er ekki staður sem neinn vill vera á, Ekki einu sinni þú.
„Gerðu rétt, láttu sjá þig og fáðu aðstoð. Ég skal fyrirgefa þér, en fáðu hjálp“
Þú missir ástvin, missir vinnuna, verður gjaldþrota. Þú ert misnotaður andlega eða líkamlega. Ástvinur eða fjölskylda særa þig eða þú hreinlega bara slasar þig. Þú verður fyrir einhverskonar áfalli.
Þú ferð heim, hrjúfrar þig í faðm fjölskyldu þinnar og finnur fyrir huggun. Þú leggst upp í þitt rúm með þín rúmföt og finnur fyrir hlýju. Þú læsir útidyrahurðinni og þú finnur fyrir öryggi. Þú ert komin heim og þar líður þér best.
Hún spyrt hvert skuli fara í áfallinu til að finna fyrir öryggi. Sumir hafa foreldrahús eða maka til að passa upp á öryggið sitt, en ef það er ekki til staðar, hvað gerir þú þá ?
„Ég er sterk, ein sú sterkasta sem ég veit um og ég veit að ég verð eins snögg og hægt er að byggja upp allt sem þú tókst frá mér, hvort sem um ræðir hluti eða ekki“.

