Fimmtudagur 8. október, 2026
6.8 C
Reykjavik

Ómari hrýs hugur þróun íslenskrar tungu: „Orðið erfitt að hugsa á móðurmáli sínu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Er hugsanlegt að í móttöku topphótela í Frakklandi eða Þýskalandi væri bara hægt að nota ensku?” spyr Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður og skemmtikraftur á bloggsíðu sinni.

„En þessi er orðin raunin hér á landi. Samt er móttakan í hverju fyrirtæki og stofnun andlit þess. Eftirminninnilegt þegar síðuhafi var vinsamlega skipað að tala ensku við manninn í móttökunni í einu af fínasta hótelinu í miðborg Reykjavíkur”.

Ómar tiltekur nýtt dæmi úr fréttum sem sé dæmigert um aðra leið, sem enskan fer inn í mál okkar. Það lýsi sér í því ástandi, að það sé orðið erfitt, jafnvel fyrir fjölmiðlafólk að hugsa á móðurmáli sínu.

„Fréttamaðurinn var að segja frá golfkeppni og sagði að á ákveðinni holu undir lokin hefði orðið til „snúningspunktur“ í keppninni“.

„Vesalings fréttamaðurinn neyðist til að þýða hrátt úr enskunni „turning point“

„Hann virðist ekki hafa hugmynd um að í íslensku hafa verið til og eru ennþá til mörg orð um þetta fyrirbæri, svo sem þáttaskil, kaflaskil, vatnaskil, umskipti, tímamót, kúvending, vendipunktur… o. s. frv.„

Ómar spyr hvort hann hafi haldi að það þyrfti íslenskt nýyrði til þess að komast hjá því að nota orðið „turning point“.

- Auglýsing -

„Í undanhaldinu undan enskunni er kannski það fyrirbæri varasamast sem lýsir sér í því að við erum í vaxandi mæli þess ekki megnuð að hugsa á íslensku, heldur að bjarga okkur í horn með því að grípa beint eða óbeint til enskunnar”.

Í íþróttum er það þekkt bragð að leiða andstæðinga í gildru, „lokka þá inn“ eða „pretta“ en nú orðið er það alsiða að segja að verið sé „að lúra þá inn“ og að þeir séu „lúraðir inn.“

Þarna er á ferðinni aulaleg þýðing á ensku sögninni „to lure“ en íslensku orðin að lúra eða nafnorðið lúr þýða allt annað“, skrifar Ómar.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -