Hinn ástsæli skemmtikraftur og fjölmiðlamaður, Ómar Ragnarsson heldur úti bloggsíðu sem hann skrifar inn á á hverjum degi. Nýjasta færslu sína skrifar Ómar við frétt mbl.is um möguleg endalok Covid-plágunnar.
Kallar hann færsluna „Baráttan við sýkla og veirur er langhlaup án enda.“
Segi hann frá sérfræðilækni sem hann hitti um borð í Fokkervél fyrir 25 árum.
„Ókeypis og óvæntur fyrirlestur sérfræðilæknis um borð í Fokkervél sem flaug frá Akuryri til Reykjavíkur fyrir um aldarfjórðungi veitti sýn, sem þá var spánný um þá heimsstyrjöld, sem í vændum væri á 21. öldinni milli þjóða heims og sýkla og veira.“
Segir Ómar að fram að þessu hafi allt sem læknirinn sagði, gengið eftir.
„Hingað til hefur allt umræðuefnið gengið eftir. Læknavísindamenn hamast við að þróa ný og ný lyf í kapphlaupi við ný og ný afbrigði af sýklum og veirum, sem spretta upp með fjölónæmi, sem einkum er vegna gáleysilegrar meðferðar á lyfjunum og / eða með stökkbreytingum.“
Ómar er ekki bjartsýnn á framhaldið.
„Þrátt fyrir framfarirnar í lyfjagerð er afar vafasamt að „endalok plágunnar séu í augsýn“
Lokaorð Ómars eru frekar skuggaleg.
„Rétt eins og sýklar og veirur aðlaga sig sífellt að nýjum og öflugri lyfjum, þurfa þjóðir heims að aðlaga sig að hinu nýja styrjaldarástandi sem ekki mun linna.“

