Þriðjudagur 10. mars, 2026
2.8 C
Reykjavik

Ómar lögmaður og Erna Ýr hæðast að Þórhildi: „Þvílíkt lífshlaup! Við ættum að biðja fyrir henni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ómar R. Valdimarsson lögmaður og fjölmiðlakonan Erna Ýr Öldudóttir virðast ekki hafa mikið álit á Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur sem kom upp um Guðna Bergsson er hann laug í viðtali á RÚV varðandi tilkynningar um kynferðisofbeldi gagnvart landsliðsmönnum KSÍ. Í framhaldi birti Mannlíf fyrst allra að gerandinn væri Kolbeinn Sigþórsson, sem nú hefur verið tekinn úr landsliðshópnum og á þar að auki yfir höfði sér riftun samnings við Gautaborg.

Þetta er vissulega ekki í fyrsta sinn sem Þórhildur Gyða tengist máli sem varðar kynferðisofbeldi, því hún kom við sögu þegar uppistandarinn Björn Bragi var gómaður við að áreita unga stúlku kynferðislega.

Sjá einnig: Landsliðið í stormi samfélagsmiðla – Ásakanir um kynferðisbrot og heimilisofbeldi

Ómar R. Valdimarsson og Erna Ýr Öldudóttir virðast telja að eitthvað sé nú bogið við það að lenda í kynferðislegu áreiti og ofbeldi oftar en einu sinni á Íslandi.

Ómar spyr „hversu oft getur eldingu slegið niður á sama stað?“

- Auglýsing -

Og svarar sjálfum sér:

„Í tilfelli Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur, sem er fórnarlamb feðraveldisins í KSÍ-málinu, er svarið þrisvar,“ og bætir um betur:

„Það þarf greinilega að vernda þessa stúlku mjög vandlega, því hún virðist ekki geta stungið út nefinu án þess að trylltir útsendarar feðraveldisins geri hana að fórnarlambi sínu.“

- Auglýsing -

Erna Ýr er á svipuðum slóðum og Ómar:

„Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, sem KSÍ dramað hverfist um, virðist alveg svakalega óheppin í samskiptum sínum við karlmenn. Þvílíkt lífshlaup! Við ættum að biðja fyrir henni.“

Orð Ómars lögmanns og Öldu Ýrar fá ekki mikinn hljómgrunn og baráttukonan Hildur Lilliendahl lætur þau heyra það:

„WHAT THE ACTUAL FUCK ER ÞETTA SKÍTAPAKK?“

Sjá einnig: Segir tvo þjóðþekkta Íslendinga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -