Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Ólafur geðlæknir með opið bréf til Þórólfs: „Það sem ég dáist að úthaldi þínu og dugnaði“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dr. Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir og stofnandi Streituskólans, skrifaði í dag opið bréf til Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis. Birti hann bréfið á Facebook.„Hér eru íslenskar gæsalappir“

„Kæri Þórólfur

Mig langar til þess að óska þér gleðilegrar hátíðar og góðra daga um jólin með innilegri von um góða hvíld og frið frá amstri og streitu. Það sem ég dáist að úthaldi þínu og dugnaði. Og hvernig þú tekst á við ógn veirunnar af æðruleysi og ekki minna hve þrautseigur þú ert þegar gangrýni þeirra misvitru bylur á þér. Og hvernig þér tekst að vera alltaf með nýjustu upplýsingarnar um veiruna ógnarlegu. Mest dáist ég þó að því hvernig þú hefur tekist á við efann, þegar enginn veit hvað er réttast og eina leiðin er að taka þetta í skrefum, jafnvel fram og til baka. Ég vona að þér detti ekki í hug annað en að halda áfram og bið þig að hafa í huga hve mikil áhrif faraldurinn hefur á andlega líðan okkar allra og í hve veigamiklu hlutverki þú ert sem fyrirmynd hvað varðar fræðin og æðruleysið og hve mikilvæg framganga þín er til að styrkja öryggiskennd þá sem við þörfnumst öll.

Þið sem eruð sammála megið gjarnan deila þessu opna bréfi.“

Bréfið hefur vakið gríðarlega lukku en alls hafa 795 manns deilt því og 416 líkað við það. Þá hafa 50 skrifað athugasemdir við bréfið.

Samúel er sammála Ólafi.

- Auglýsing -

„Tek heilshugar undir með þér Ólafur Þór. Þórólfur stendur sig afburðavel og er sem betur fer dáður af flestum landsmönnum. Var einmitt að hugsa um það að við læknar þurftum að sýna honum svart á hvítu að við styðjum hann 100 %. Þórólfur þú ert til fyrirmynda.“

Elín er það líka.

„Tek svo sannarlega undir þessi orð. Vel orðað hjá þér. Þórólfur hefur sýnt ótrúlegt æðruleysi og er alltaf hreinskilinn, það kann ég vel að meta.“

- Auglýsing -

Þá er Sigmundur aukreitis sammála skrifunum.

„Alveg yndisleg skrif hjá þér félagi og skólabróðir, ekki hægt annað en hæla Þórólfi sem virðist leggja sál sína í þetta flókna verkefni.“

Björg er þakklát og hefur þetta bara einfalt.

„Takk“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -