Ólafur Vigfússon, annar eiganda Veiðihornins, fékk yfir sig fjölda hatursskilaboða í gær. Ástæðan eru sú, líkt og Mannlíf greindi frá, að hann felldi hreindýratarfa í veiðiferð með eiginkonunni, Maríu Önnu Clausen.
Mörgum virðist hafa líkað illa drápið á hreindýrstörfunum tveimur og rigndi yfir Ólaf hatursfullum skilaboðum í gær. „Ég átti nú ekki von á þessu, en það er bara búið að hrauna yfir mig alveg hægri-vinstri í allan dag,“ segir Ólafur í samtali við Morgunblaðið.
Ólafi finnst mörg skilaboðanna óboðleg og bendir á að í fyrri ferðum hafi María fengið morðhótanir. Hann segist ekki ætla að tilkynna nein ummæli til lögreglu. „Það er bara fullt af veiku fólki þarna úti, fólki sem segir alls konar hluti sem það myndi aldrei segja við mann persónulega. Við erum bara að veiða okkur til matar. Það er ekki þannig að maður sé þarna hlaupandi uppi dýrin hlæjandi og skríkjandi.“

