Óli Björn Pétursson varð fyrir hræðilegu kynferðisofbeldi, auk andlegs og líkamlegs ofbeldis, af hálfu kynferðisglæpamanns, sem oftast er kallaður Siggi hakkari.
Óli Björn segir, í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, sögu sína sem ekki er falleg.
Hann vill setja gott fordæmi með því að stíga fram vill og hvetur aðra unga menn sem lent hafa í kynferðisofbeldi að segja frá reynslu sinni.
Sigurður „Siggi hakkari“ sendi ítrekað skilaboð á Óla Björn og náði honum smám saman á sitt vald, en þá var Óli Björn ekki orðinn fimmtán ára:
„Hann hætti aldrei að senda á mig fyrr en ég samþykkti og þá kom hann,“ segir hann og bætir við að Sigurður hafi fyrst brotið á sér 24. apríl 2011 á Sauðárkróki; Sigurður keyrði alla leið norður í þeim eina tilgangi að brjóta á drengnum:
„Það er erfitt að segja frá þessu. Hann náði mér og það varð ekki aftur snúið. Hann hótaði mér öllu illu. Hann hótaði að segja frá, en ég upplifði gríðarlega skömm. Hann hótaði að gera fjölskyldunni minni illt. Ég var í heljargreipum. Ég sagði engum frá neinu á þessum tíma.“
Óli Björn segir að flest brotin hafi átt sér stað í bíl í nágrenni Sauðárkróks og bætir við:
„Hann átti vopn; rafbyssu, handjárn og hann var með skammbyssu og skothelt vesti í bílnum. Það var allur pakkinn. Hann notaði eitt sinn rafbyssuna á mig og ég ber ör eftir það. Hann notaði hana á mig þegar ég neitaði að gera það sem hann vildi. Hann notaði í eitt skipti á mig piparúða. Honum þótti ógurlega fyndið að spreyja piparúða beint í augun á mér. Hann beitti mig oft líkamlegu ofbeldi á allan hátt. Hann lét mig líka hafa Viagra til þess að ég gæti gert eitthvað við hann. Hann var alltaf með valdið og ég vissi hvað hann var fær um. Ég var alltaf hræddur við hann og gerði bara það sem hann sagði mér að gera. Þetta var ógeðslegt frá A til Ö,“ segir Óli Björn
„Þetta hætti ekki fyrr en 2013- 2014, þannig að þetta var í gangi í tvö og hálft til þrjú ár. Þetta er löng saga,“ segir Óli Björn og segir Sigurð hafa haft algjört vald yfir sér. „Það voru níu strákar í heildina sem hann var dæmdur fyrir að brjóta á. Ég veit ekki til að neinn þeirra hafi stigið fram eins og ég er að gera núna. Hann sat aðeins inni í nokkra mánuði, það er það versta af öllu.“

