Fimmtudagur 8. október, 2026
6.8 C
Reykjavik

Og hvað á barnið að heita? – Mannanafnanefnd samþykkir bæði Nýdönsk og Eló

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það bætist enn í flóruna hjá Mannanafnanefnd og nú er nefndin búin að samþykkja nafnið Nýdönsk, sem flestir tengja við eina ástsælustu samnefndu hljómsveit sem verið hefur að með frábærum árangri frá árinu 1987. Nú má skýra stúlkubarn þessu nafni, og verður fróðlegt að sjá hvort nafnið verði vinsælt í nánustu framtíð.

Nýdönsk var ekki eina nafnið sem var samþykkt sem tengist tónlist, en nú má skýra börn Eló, en mögulega er tengingin við heimsfrægu hljómsveitina ELO (Electric Light Orchestra) ekki alveg eins skýr og nafnið Nýdönsk.

Hins vegar er það ansi skemmtileg tenging að forsprakki hljómsveitarinnar Nýdönsk eignaðist í gær sitt fjórða barn með núverandi eiginkonu sinni, Hildi Völu og fyrir utan Bítlana er ELO einmitt uppáhalds hljómsveitin hans Jóns, sem er sérlegur aðdáandi forsprakka ELO, Jeff Lynne.

Hvernig hljómar nafnið Nýdönsk Eló?

Einnig voru samþykkt nöfnin Álfkell, Joseph og Margaret og eru því ný íslensk mannanöfn.

Úrskurður nefndarinnar var á þann veg að sex ný nöfn voru samþykkt- tveimur hafnað.

- Auglýsing -

Áðurnefnd Nýdönsk, Lillín, Eló, Álfkell, Joseph og Margaret voru samþykkt og skulu vera færð á mannafnaskrá. En nafninu Ólasteina var hafnað; á grundvelli þess að það gangi gegn hefðbundnum nafnmyndunarreglum í okkar ástkæra ylhýra.

Nefndin hafnaði einnig beiðni um nafnið Kamban, sem millinafni, þar sem nafnið er ættarnafn, í skilningi mannanafnalaga.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -