Laugardagur 7. mars, 2026
1.8 C
Reykjavik

Öfgakonur segja Klöru hjá KSÍ líka ljúga – Boða til friðsamlegra mótmæla á fimmtudaginn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Forvarnahópurinn Bleiki fíllinn og meðlimir Öfga-hópsins skora á alla stjórn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, að segja af sér. Það sé ekki nóg að Guðni Bergsson, fráfarandi formaður, taki einn ábyrgð á gjörðum sambandsins enda hafi Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri einnig sagt ósátt undanfarið að mati hópanna tveggja.

Barátturhóparnir tveir jafnframt stofnað til undirskriftasöfnunar þar sem skorað er á stjórn KSÍ að segja af sér og boða þeir jafnframt til friðsamlegra mótmæla.

Einn forsprakka Öfgahreyfingarinnar, einkaþjálfarinn Ólöf Tara Harðardóttir, birti yfirlýsingu hópanna tveggja á vegg sínum á Facebook. Hún hljóðar svo:

„Áskorun á stjórn KSÍ að segja af sér

Vegna yfirlýsingar KSÍ í gær er ljóst að það á að láta einn mann axla ábyrgð á gjörðum KSÍ og halda að það nægi. Við sem þjóð sjáum í gegnum þann gjörning.

Spilling sem þessi viðgengst ekki vegna eins manns auk þess sem þessi eitraða menning hefur verið við lýði mun lengur en Guðni hefur starfað innan KSÍ.

Klara Bjartmarz fékk hið umdeilda bréf, það eru til sannanir fyrir því. Samt neitar hún fyrir það. Hún segist ekki hafa horft á Guðna í Kastljósi, hver trúir því? Í alvörunni Klara, ef allt þetta gat viðgengist án þinnar vitundar, þá hlýturðu að sjá að þú ert ekki starfi þínu vaxin. Stjórnin verður að víkja, það sér það hver sál.

- Auglýsing -

Að auki eru til heimildir fyrir því að annar varaformaður KSÍ var í gleðskap með kvennalandsliðinu þar sem þjálfarinn gerðist sekur um ólíðandi framkomu. Henni fannst það ekki eiga erindi við aðra í stjórn KSÍ og þagði með honum. Hann var látinn fara stuttu seinna.

Það þarf að uppræta þessa eitruðu menningu. Það verður ekki gert með sömu stjórn og hefur viðhaldið henni. Íslensk knattspyrna og þolendur eiga betra skilið.
Við boðum því til friðsamlegra mótmæla næsta fimmtudag 2. september klukkan 17:00. Yfirskrift mótmælanna er „Stjórnin út“. Þið megið geta tvisvar hvar.“

Hér má sjá skjáskot sem hefur farið í dreifingu á samfélagsmiðlunum í dag en á því má sjá tölupóst er varðaði ofbeldi innan landsliðsins, skrifaðan af föður stúlku sem varð fyrir ofbeldi af hálfu landsliðsmanna. Sést greinilega að Klara Bjartmarz, framkvæmdarstjóri KSÍ er ein af þeim sem fengu póstinn en hún hefur staðfastlega neitað í fjölmiðlum að hafa vitað af ofbeldinu.

- Auglýsing -

Ef þú vilt styðja baráttuhópana í áskorun á stjórn KSÍ um afsögn þá getur þú gert það hér.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -