Þriðjudagur 17. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Nýtt líf Friðriks Ómars: „Ég fór úr 96 kílóum niður í 63 kíló á einu ári“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Söngvarinn síkáti, Friðrik Ómar Hjörleifsson missti 33 kíló á einu ári. Hann var að undirbúa það að koma út úr skápnum og missti sveindóminn, 25 ára gamall.

Friðrik Ómar var gestur vikunnar í Einkalífinu á Vísi.is. Þar talar Dalvíkingurinn brosmildi meðal annars um þann tíma er hann missti 33 kíló á einu ári.

„Ég kem hingað suður árið 2003 og byrja borða skyr, sem var voðalega vinsælt þá. Það virkaði þó það sé nú töluvert mikill sykur í því. Ég fékk mér einkaþjálfara og þetta gekk nokkuð hratt. Ég fer úr 96 kílóum niður í 63 kíló á svona einu ári,“ segir Friðrik og heldur áfram.

„Ég fór ekki í hjáveituaðgerð og gerði þetta bara sjálfur. Í minningunni var ég ekki að svelta mig eða neitt svoleiðis. Það var bara eitthvað svo mikið að gerast hjá mér. Ég var að undirbúa að koma út úr skápnum, ég var hrifinn af strák og þetta gerist allt saman í einum graut. Ég missi þarna sveindóminn 25 ára og hafði ekki verið með konu eða neitt á þessum tíma,“ segir Friðrik sem kom út úr skápnum 2006.

„Ég var samt búinn að segja mömmu áður og vinum og fleirum. Þau bara fóru að hlægja og vissu þetta tíu árum áður. Þetta var að einhverju leyti erfitt skref því maður býr til svo mikið í hausnum á sér og ákveður fyrir fram hvernig fólk bregst við.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -