Þriðjudagur 10. mars, 2026
2.8 C
Reykjavik

Nemendur skikkaðir í tiltekt í jólafríi: „Erum að borga fyrir það sem fólk er ráðið til að sjá um“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nemendur í Listaháskóla Íslands eru beðnir um að mæta í skólann í jólafríi til að sjá um tiltekt eftir önnina.

Umræða er nú á Twitter þar sem nemendur skólans furða sig á þessu fyrirkomulagi, en þar spyr Sigrún:

„Hvernig er það, mæta nemendur í HÍ og HR líka á tiltektardaga og raða borðum og stólum í jólafríinu?“

Tölvupóstur til nemenda

Þá segir einn nemandi frá því að hún hafi þurft að mæta á sérstakan tiltektardag, og aftur daginn eftir, til að klára verkið:

„Það var lokað út í gám í gær á *tiltektardeginum* þannig við eigum bara að mæta aftur á morgun.“

- Auglýsing -

Nemendur við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík þekkja það ekki að mæta í miðju jólafríi til þess eins að taka til, en ein segir:

„Við erum að borga fyrir að vera þarna, það er fólk ráðið til þess að sjá um þetta.“

- Auglýsing -

Þess má geta að skólagjöld hjá Listaháskólanum eru að jafnaði um 300.000 krónur á önn.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -