Elísabet nokkur varð verulega áhyggjufull þegar hún fann „fullt af pöddum á svölunum mínum í gær sem ég hef ekki séð áður. Þarf ég að hafa einhverjar áhyggjur?“
Elísabet segir svo frá í hverfishópi íbúa á Facebook að hún fór og „hengdi föt út á þvottagrind og ein ullarpeysa datt niður af grindinni. Svo þegar ég ætlaði að taka hana upp voru alveg 20-30 svona pöddur á peysunni. Þær eru um 3-4 mm á lengd. Veit einhver hér hvaða pöddur þetta eru? Ég bý á 4. hæð og hef aldrei séð neinar pöddur hér nema stöku köngulær. Eru þær að sækjast í ullina? Búa þær í gúmmíflísunum sem eru á svalagólfinu? Eru þetta kannski litlar köngulær?
Peysan er að minnsta kosti enn úti og pöddurnar líka.“
Margir svara Elísabetu og flestum ber saman um að hér séu á ferð nýklaktar köngulær á meðan aðrir benda á að hér gætu verið lýs á ferðinni. Sumar þeirra geti verið varasamar líkt og Óli nokkur bendir á:
„Passaðu þig bara að þetta sé ekki „tick“. Hún er skyld lundalús og berst til landsins með fuglum og getur valdið banvænum sjúkdómum,“ segir Óli.
Elísabet segist ekki ætla aftur út á svalir fyrr en hún finni út úr því hvaða pöddur þetta eru. Að því gefnu að þetta séu könguær segir hún að lokum í léttum dúr:
„Af hverju vilja þær hanga í peysunni minni? Ættu þær ekki að vera í einhverju horni að æfa sig að spinna vef?“



