Þann 26. þessa mánaðar er komið heilt ár frá því að Bræðraborgarstígur 1 brann og þrír dóu. Síðan hefur ekki verið hreinsað til og eigur fórnalambanna eru ennþá inn í byggingunni. Ekki hefur einu sinni verið tekið af rúmunum og matur er enn á borðum og í skápum. „Óþefurinn og brunalyktin eru hræðileg,“ segir Asdrid Lelarge í átakanlegri færslu á síðu Vesturbæjar á Facebook.
Hún birtir bæði ljósmyndir og myndbönd sem sýna hversu skelfilegt ástandið er á svæðinu.
Hún segir að í nóvember í fyrra hafi komið fjárfestir og samið um kaup á Bræðraborgarstíg 1 og 3. Síðan þá hafi ekkert verði hreinsað til. Húsið haldi áfram að grotna niður, glerbrot séu ennþá út um allt og eigur fórnalambanna inn í húsinu. Börn sem fullorðnir eigi greiða leið inn. „Ólyktin hefur stigmagnast og hugsun um að eigur fórnalambanna sé að rotna þarna er óbærileg. Nágrannar í næstu húsum hafa ekki dregið frá gluggum sem snúa að húsinu í nú að verða heilt ár”.
Hún segir að í öðrum Evrópulöndum sé almennilega hreinsað til inni og úti, allt hættulegt fjarlægt, sett spjöld fyrir glugga og jafnvel settur heill dúkur með mynd sem hylur allt þangað til það er búið að ákveða með framhaldið.
„Af hverju er það ekki gert hér?”
Mikill fjöldi fólk hefur lýst yfir vanþóknun sinni og fer fram á að tafarlaust verði gripið til aðgerða enda sé hér um að ræða virðingarleysi gagnvart þeim sorgaratburði sem þarna átti sér stað. Í umræðunni kemur fram að haft hafi verið samband við borgaryfirvöld og þau svör fengist að niðurrif ætti að hefjast í dag, föstudag.
Þegar Mannlíf hafði samband við nágranna húsins kl. 15:30 bólaði ekkert á slíku.

