Stefán nokkur birti heldur óhuggulegt myndband á vegg sínum þar sem hann slátrar litlum fugli á stofugólfinu heima hjá sér. Á myndbandinu má sjá augljóslega logandi hræddan fuglinn innan um heimilisketti tvo áður en Stefán heggur margsinnis til hans með hnífi.
„Geggjað fallegur fugl sem við veiddum í matinn,“ segir Stefán rétt áður en hann mundar hnífinn til höggs. Lætur hann vaða að minnsta kosti sex sinnum í fuglinn þar til blóðslettur og fiður dreifist um stofugólfið. Að loknu verki má heyra Stefán segja:
„Úpps.“
Þessu næst hlær Stefán og lyftir svo blóðugum hnífnum á loft: „Uppáhaldið mitt, ferskt blóð.“
Eftir því sem Mannlíf kemst næst er myndbandið nýlegt og hefur það verið á fleygiferð um samfélagsmiðlana í morgun. Lögreglu hefur verið gert viðvart og myndbandið sem finna mér hér að neðan, sem er sannarlega ekki fyrir viðkvæma, verið sent lögreglunni:

