Sunnudagur 15. febrúar, 2026
-6.2 C
Reykjavik

Mynd dagsins: Hamingjudögum ríkisstjórnarinnar lokið?

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það má með sanni segja að búist sé við hamagangi á fundi ríkisstjórnarinnar sem boðað hefur verið til klukkan 16:00 í dag, þar sem á að fjalla um minnisblað Þórólfs sóttvarnalæknis. Ekki eru allir sammála um það hvort og hvernig eigi að grípa til aðgerða vegna ástandsins sem komið er upp í þjóðfélaginu vegna Covid-19.

Sjálfstæðismenn virðast ekki vilja gera neitt

Sjálfstæðismenn eru alls ekki hlytir því að gripið verði til róttækra aðgerða og eru ósáttir við Svandísi Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sem tekur orð Þórólfs alvarlega og vill fara eftir þeim. Því má segja að mynd dagsins sé táknræn fyrir það ástand sem ríkir  á milli Svandísar og Sjálfstæðismanna.

Mikil aukning á smitum

Það greindust 76 einstaklingar með Covid-19 innanlands í gær. 54 voru fullbólusettir en 22 óbólusettir. 46 voru utan sóttkvíar er þeir greindust. Nú liggja þrír á sjúkrahúsi vegna veirunnar. Eins og Mannlíf greindi frá í morgun hefur Landspítalinn verið settur á hættustig vegna ástandsins. Þórólfur sóttvarnarlæknir og Kári Stefánsson hafa báðir tjáð sig undanfarna daga og virðast sammála um það að grípa þurfi til aðgerða sem fyrst til þess að hefta útbreiðslu veirunnar.

Smit hafa skotið upp kollinum víða

- Auglýsing -

Smit hafa verið að skjóta upp kollinum víða í þjóðfélaginu og mikið af ungum bólusettum einstaklingum hafa smitast. Margir vilja rekja það til skemmtanalífsins. Smit hefur komið upp á knattspyrnumótinu Reycup eins og Mannlíf greindi frá í gær og eru þrjú lið komin í sóttkví í tengslum við mótið. Þá hafa ýmsar heilbrigðisstofnanir hert sóttvarnir sem ekki virðist vera vanþörf á. Það þar ekki að fletta neinum blöðum um það að ástandið er ekki beint glæsilegt á Íslandi.

Sjá sjá einnig: Stjarnan yfirgefur Reycup vegna Covid – smits: „Þetta er bara ótrúlega leiðinlegt“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -