Þann 19. júlí 1977 var rétt tæplega fimmtugur maður, Hrafn Jónsson, málarameistari, færður í fangageymslu lögreglunnar á Hverfisgötu sökum ölvunar og átti hann þar að sofa úr sér vímuna Þá mun klukkan hafa verið um níuleytið um kvöldið. Þegar var í sama klefa annar maður í svipuðu ástandi.
Klukkutíma síðar bættust við tveir aðrir góðkunningjar lögreglunnar, þeir Grétar Vilhjálmsson og Guðmundur Antonsson. Allir voru þeir þekktir drykkjumenn á fimmtugsaldri sem margoft höfðu lent í svipuðum aðstæðum. Drykkjufélagarnir voru vistaðir í svoköllum „almenning” en ekki einstaklingsklefa, þar sem enginn þeirra hafði þekkta sögu ofbeldis að baki.
Beltið gleymdist
Má þess geta að almennt er reglan að taka af mönnum belti og aðra hluti sem geta reynst þeim sjálfum og öðrum hættulegir en í þessu tilfelli var þeirri reglu ekki fylgt. Mun Guðmundur hafa verið með skyrtuna flaksandi utan yfir buxurnar þegar hann kom og sást belti því ekki. Auk þess þótti Guðmundur rósemdarmaður og hafði aldrei sýnt af sér ofbeldishneygð þótt drukkinn væri.
Rúmlega ellefu heyrir fangavörður dynk úr klefanum og fór að kanna hvað á gengi og sér þá hvar Guðmundur hafði strekkt belti sitt um háls Hrafns og voru þeir félagar Guðmundur og Grétar að berja hann hrottalega í andlit. Fangaverðir yfirbuguðu þá Guðmund og Grétar og færðu umsvifalaust í annan klefa og hagræddu Hrafni sem var veikburða. Fyrst var ekki talið að áverkar hans væru alvarlegir en við nánari athugunum kom í ljós að Hrafn var augljóslega mikið slasaður.
Hringt var á sjúkrabíl en reyndist Hrafn látinn við komuna á sjúkrahús.
Mundu ekki ástæðu morðsins
Aldrei kom í ljós hvað varð til þess að þeir Guðmundur og Grétar sýndu af sér þessa ofstopafullu hegðun í garð Hrafns í klefanum. Þeir viðurkenndu að hafa barið Hrafn ítrekað með hnefunum og brugðið belti Guðmundar um háls hans og rykkt í en gátu með engu móti munað hvað hafði komið þeim til þess að fremja þessa hrottalegu árás. Við krufningu kom í ljós að dánarorsök Hrafns var kyrking. Fjórði maðurinn reyndist hafa sofið ölvunarsvefni á meðan á árásinni stóð og var sleppt í kjölfarið.
Guðmundur og Grétar voru látnir gangast undir geðrannsókn, fundnir sekir og dæmdir til 8 ára ára fangelsisvistar í sakadómi Reykjavíkur þann 6. desember 1977.
Var þó svo metið að andlegum þroska þeirra og geðheilbrigði væri verulega ábótavant og var þeim gert að vistast á viðeigandi stofnun.

