Fimmtudagur 8. október, 2026
7.8 C
Reykjavik

Móður ofbýður góðæri barnanna: „Búinn að lenda í aðkasti fyrir að vera ekki eins kúl og hinir“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það er ekkert normal við það að 7-8 ára barn eigi iPhone 10, rafmagnshlaupahjól og rafmagnshjól. Hvað þá allt þrennt!!!,” segir í færslu á Facebook síðunni Mæðratips.

Þar skrifar móðir sem hefur fengið meira en nóg af þeim efnislegur gæðum sem settar eru upp í hendurnar á ungum börnum.

Sonur hennar er í öðrum bekk og kom heim með tvo bekkjarfélaga heim eftir frístund. Allt reyndist gott og blessað þar til sonur hennar fékk á sig spurningaflóð frá litlu vinunum.

„Áttu ekki alvöru síma?” Sonur hennar á takkasíma, ekki snjallsíma. „Ég á sko iPhone 7 og ég á iPhone 10. Snjallsímar eru svo alvöru símar“.

Því næst var drengurinn spurður að því hvað hann ætti mörg hlaupahjól en hann á eitt slíkt, venjulegt. „Áttu ekki rafmagnshlaupahjól LAME!”

Þriðja spurningin var um fjölda hjóla sem hann ætti og svaraði drengurinn því eðlilega að hann ætti eitt. En nei, litlu félagarnir voru á því að maður ætti líka að eiga rafmagns.

- Auglýsing -

„Og á sama tíma og þeir eru að græja sig til að fara út og troða í töskurnar dóti sem sonur minn hafði verið að gefa þeim af því að þeim langaði svo mikið í það, en honum fannst ekkert spennandi lengur og vildi vera góður að deila með sér.”

Móðirin segir það gera sig reiða að þetta sé sá raunveruleiki sem við búum í, að góðæri barnanna sé orðið svo svakalegt að þeim finnist sjálfsagt að eiga tvö til þrjú eintök af hverju, til dæmis bara venjulegt hjól og rafmangshjól.

Hún hvetur foreldra til að hætta þessari vitleysu. „Vona að flestar okkar séu með fæturnar á jörðinni og held því miður að okkur fækki hratt“.

- Auglýsing -

Hún kveður með orðunum: „Kveðja, móðir barns sem á ,,BARA” old school hluti en er samt nóug sáttur með sitt til að deila með sér þrátt fyrir að á sama tíma sé honum sagt að það sem hann eigi sé ekki merkilegt”.

Mikill fjöldi mæðra og segir Sædís þessi börn verða gjaldþrota fyrir tvítugt. „Þau alast upp við óraunhæfa staðal sem þau munu ekki koma til með að standa upndir“. Berglind bendir á að kannski hafi ekki margt breysti í gengum árin. „Þegar ég var krakki var þetta alveg eins, sumir áttu Nintedo og alls konar tölvuspil, úr með síma, síma í herberginu sínu og rosa flott hjól, hjólabretti og línuskauta. „Flottu hlutirnir“ eðlilega breyst í gegnum ´timann en samkeppnin er sú sama“.

Kolbrúna segir börnin læra að metast í skólanum burtséð frá því hvernig þau séu alin upp. „Minn fór bara allt í einu að taka upp á því að biðja um merkjavöru, þá sérstaklega föt, þá var hann greinilega búinn að lenda í aðkast að vera ekki eins kúl og hinir“.

Guðríður bendir á þann möguleika að hugsanlega séu börnin ekki að segja satt en langi til að vera „kúl“ í augum annarra. Endija segir einfaldlega: „Foreldrar þurfa bara að ræða við börnin sín“.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -