Það þrengir enn að stjórn KSÍ og formanni sambandsins, Guðna Bergssyni, vegna ofbeldismála leikmanna karlalandsliðsins í knattspyrnu.
Baráttukonan Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, sem er framhaldsskólakennari og formaður jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, segir að nú í morgun hafi hún fengið fregnir af hópnauðgun sem landsliðsmenn í knattspyrnu hafi gerst sekir um.
Hanna Björg segir að móðir stúlku sem hafi orðið fyrir hópnauðgun landsliðsmanna fyrir nokkrum árum hafi haft samband við sig í morgun, og segist Hanna Björg vita hverjir gerendurnir eru.
Hanna Björg var í viðtali í útvarpsþættinum Sprengisandur á Bylgjunni áðan.
Enn fremur sagði Hanna Björg að „þolendur þora ekki að nafngreina gerendur af ótta við fjárkúgun lögfræðinga og að vera úthrópaðir í kommentakerfum. Við erum meðvirk með viðbjóðslegum glæpum sem hafa svívirðilegar afleiðingar. Spjótin standa núna á KSÍ. Þetta er samfélagslegt mein sem við verðum að halda áfram að tala um þangað til það breytist.“
Einnig að „ég veit ekki hvort væri verra ef formaðurinn, stjórn og starfsfólk KSÍ vissu ekkert um þessi mál eða reyndu að þegja þessi mál í hel. Þau eru ekki starfi sínu vaxin ef þau vissu ekki af þessum málum. En auðvitað vita þau af þessu.“
Hanna Björg kom einnig inná að samfélagið í heild verði að bregðast við:
„Þó að spjótin standi núna á KSÍ þá er þetta samfélagslegt mein sem við verðum að halda áfram að tala um þangað til það breytist.“

