Lesendur DV supu hveljur að morgni 7. júní 2004. Stór forsíðutilvísun lýsti því að Harry Potter væri sprautufíkill og hefði fundist meðvitundarlaus eftir neyslu á heróíni. Reyndar var um að ræða leikarann sem lék Potter, Daniel Radcliffe, 14 ára, sem að sögn DV var fluttur á sjúkrahús.

Á þessum tíma var DV á miklu flugi undir ritstjórn Mikaels Torfasonar sem þótti afar djarfur í framsetningu efnis og var að sama skapi umdeildur. En þótt lesendum DV hefði brugðið við fréttina átti fleirum eftir að bregða. Í Hollywood fór allt á annan endann þegar framleiðendur nýjustu Potter-myndarinnar komust á snoðir um fréttina í íslenska götublaðinu. Og ekki bætti úr skák að því var lýst í frétt DV að „á meðan Gary Oldman væri ekki mestí eiturlyfjaneytandinn á tökustaðnum þá værum við í slæmum málum“. Fréttin átti eftir að valda miklum höfuðverk á DV þegar leið á útgáfudaginn. Málið vafði upp á sig. Mikael Torfason og félagar hans höfðu móðgað Harry Potter og alla hans aðstandendur.
Uppnámið á DV
Vitnað var til BBC í fréttinni. Nánari lýsing á neyslu leikarans unga var sú að móðir hans hefði komið að honum meðvitundarlausum á baðherbergisgólfinu heima hjá sér. Þá segir í blaðinu að fréttir um harða neyslu leikarans unga hafi komið „talsvert á óvart“ en sögusagnir þess eðlis hefðu heyrst áður. Margsinnis hefði þurft að fresta tökum á myndinni þar sem leikarinn ungi hefði oft verið í svo slæmu ástandi að hann hafi engan veginn getað leikið. „…Og hafa sögusagnirnar nú verið staðfestar,“ segir í frétt DV. Þá er bætt um betur með því að upplýsa að aðstandendur myndarinnar hefðu staðið sig mjög vel í því að halda þessu ástandi leikarans leyndu. „Þetta var samt ekkert leyndarmál á tökustaðnum…,“ segir í fréttinni.

Stór tilvísun á forsíðunni lýsti því að Harry Potter væri heróínneytandi.
Því er lýst að allt frá því að fyrsta myndin um Harry Potter kom út hefði Daniel verið á hraðri niðurleið.
„Þetta atvik kemur upp á versta tíma fyrir framleiðendur myndarinnar en þriðja Harry Potter myndin var frumsýnd í síðustu viku og var búist við að hún myndi hala inn milljarða króna. Nú óttast menn að aðsóknin muni minnka þótt atvikið hafi vissulega vakið athygli á myndinni þannig að ómögulegt er að segja hvaða áhrif þetta hefur. Búast má við tilkynningu frá Radcliffefjölskyldunni fljótlega,“ segir í niðurlagi fréttarinnar.
Það var skammt liðið á dag þegar lögfræðingar frá Hollywood höfðu samband við ritstjórn DV. Ritstjórum og blaðamanni til skelfingar kom á daginn að fréttin var röng. Þetta var í árdaga internetsins og ritstjórn DV hafði látið fallerast af falsaðri síðu sem kennd var við BBC. Fréttin var uppspuni frá rótum.
Afsökunarbeiðni
Daginn eftir birtist auðmjúk afsökunarbeiðni í DV. Forsíðutilvísunin var: BBC brjálað. Heróíni logið upp á Harry Potter. Inni í blaðinu var afdráttarlaus afsökunarbeiðni þar sem útrekað var að BBC-menn væru æfinr. Harry við heistaheilsu sagði blaðið.

„Sagt var frá því í DV í gær að leikarinn ungi, Daniel Radcliffe, hefði um helgina tekið inn of stóran skammt af heróíni og fundist meðvitundarlaus á baðherbergisgólfinu heima hjá sér. Þetta reyndist vera uppspuni frá rótum. Óprúttnir náungar höfðu búið fréttina til og birt á vefnum líkt og um frétt frá BBC, breska ríkissjónvarpinu, væri að ræða. BBC kannar málið. Ýmsir tóku falsfréttina trúanlega en hjá BBC-sjónvarpinu breska könnuðust menn hins vegar ekki við að hafa skrifað fréttina. Þegar haft var samband við þá sögðust þeir vera að kanna hverjir stæðu á bak við atvikið. Þar á bæ líta menn fölsunina alvarlegum augum en að svo stöddu er ekki vitað hvort eitthvað verði gert í málinu,“ segir í DV.
Þá eru rifjuð upp mál þar sem fjölmiðlar voru gabbaðir af óprúttnum aðilum. Og niðurlagið er einlægt. „… DV viðurkennir fúslega að hafa gert mistök með því að birta fréttina af Harry í gær og biður blaðið lesendur sína afsökunar á atvikinu. Einnig eru þeir sómamenn og frábæru listamenn Gary Oldman og Daniel Radcliffe beðnir innilega afsökunar á öllum óþægindum sem trúgirni okkar kann að hafa valdið þeim,“ segir í yfrlýsingu DV.
Bætur til munaðarlausra
En málinu var ekki lokið með þessu. Lögfræðingar kvikmyndarisans vildu bætur frá síðdegisblaðinu á Íslandi. Varð niðurstaðan sú að greidd var ákveðin fjárhæð til munaðarleysingja. Var málið þannig úr sögunni. Ekki heyrðist meira af tilraunum BBC til að finna þrjótana eða hvort aðrir fjölmiðlar hafi þurft að greiða bætur.
Ísafjarðarmálið
Þetta var þó ekki erfiðasta málið á ritstjórn DV því nokkru síðar kom upp Ísafjarðarmálið svokallaða. Gerandinn í því máli fyrirfór sér áður en blaðið kom út og 30 þúsund manns skoruðu á ritstjóra DV að fara frá. Borgar Þór Einarsson, núverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra, stóð ásamt fleirum fyrir áskorun á Netinu. Að þessu sinni dugði ekki afsökunarbeiðni og ritstjórarnir Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson hrökkluðust úr starfi. Seinna kom á daginn að frétt blaðsins var rétt en framsetningin skelfileg.
Þessi grein birtist að uppistöðu til í Stundinni áður en höfundur er sá sami og nú.

