Fimmtudagur 14. maí, 2026
5.4 C
Reykjavik

Miðflokkurinn sakaður um brot á persónuverndarlögum – Sagðir hafa stolið flokkskrá Framsóknar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Miðflokkurinn er sakaður um að brjóta persónuverndrarlög með því að senda fyrrum félögum Framsóknarflokksins tölvupóst. Þeir sem fengu póstinn hafa margir aldrei verið skráðir í Miðflokkinn.

Björgmundur Örn Guðmundsson setti færslu á Facebook síðu sína þar sem hann hvetur þá sem hafa fengið umræddan tölvupóst, sendi tilkynningu til persónuverndar. Björgmundur telur Miðflokkinn hafa stolið flokksskrá Framsóknarflokksins „Er þetta enn ein staðfesting á því sem menn voru nokkuð vissir um að fyrrum félagar í Framsókn stálu flokksskránni og hafa nýtt hana til að hafa samband við fólk bæði með tölvupóstum og smsum ólöglega,“ segir Björgmundur og heldur áfram, „Stefna flokksmanna hefur verið að leiða þetta hjá sér og einblína á jákvæða baráttu. En að þessi ólöglega notkun sé enn til staðar 5 árum síðar nær út fyrir allan þjófabálk.“

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -