Þann 24. nóvember síðastliðinn komst kærunefnd jafnréttismála að þeirri niðurstöðu að Menntaskólinn við Sund hafi brotið gegn lögum með því að mismuna umsækjendum um starf á grundvelli aldurs.
Mannlíf veit ekki til þess að áður hafi verið viðurkennt slíkt brot á lögum. Lög um jafna meðferð á vinnumarkaði tók gildi 1. september 2018 að öllu leyti fyrir utan það er kom að mismunun eftir aldri, það bættist við í júlí 2019. Það var því ekki fyrr en í júlí 2019 sem fólk öðlaðist rétt til að vera ekki mismunað á vinnumarkaði á grundvelli aldurs.
Á heimasíðu Bandalags háskólamanna eru markmið laganna útskýrð.
„Markmið laganna er að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga á vinnumarkaði óháð þáttum eins og þjóðernisuppruna, kynþætti, trú, aldri, lífsskoðun, fötlun, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum o.fl. Í lögunum er lagt bann við ýmiss konar mismunun á grundvelli fyrrgreindra þátta, m.a. bann við mismunun í starfi og við ráðningu og bann við mismunun í tengslum við laun og önnur kjör. Þá er vinnuveitendum skylt að gera viðeigandi ráðstafanir, sé þeirra þörf, til að gera fötluðum einstaklingi eða einstaklingi með skerta starfsgetu kleift að eiga aðgengi að og taka þátt í starfi, njóta framgangs í starfi og fá þjálfun, séu þessar ráðstafanir ekki of íþyngjandi fyrir atvinnurekanda.“
Meðal raka sem Menntaskólinn við Sund kom með gegn kæru kennarans sem kærði skólann eru fjárhagsleg rök. Taldi skólinn ekki gott út frá fjárhagslegu sjónarmiði að ráða svo reynslumikinn kennara til starfa við skólann, slíkt væri of dýrt.
„Kærði hafnar því að lög hafi verið brotin við ráðningu í starf kennara í lýðræðisvitund og siðferði. Hafi ákvarðanir kærða í ráðningarferlinu verið byggðar á rekstrarlegum forsendum í samræmi við lög nr. 123/2015 um opinber fjármál og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins en rektor bar í samræmi við þessi lög að hafa fjárhagslega skilvirkni að leiðarljósi við ráðninguna. Á þeim forsendum hafi verið litið svo á að kennarar með skerta kennsluskyldu samkvæmt gildandi kjarasamningi kæmu einfaldlega ekki til greina í umrætt starf enda myndi slík ráðning í raun fela í sér íþyngjandi kostnað, þ.e. starfsmann í vel yfir 130% starfshlutfalli.“
Kærunefnd jafnréttislaga féllst hvorki á þessi rök skólans né önnur og dæmdi kennaranum í vil. Eftirfarandi eru úrskurðarorð nefndarinnar.
„Kærði, Menntaskólinn við Sund, braut gegn 1. mgr. 8. gr., sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði við ráðningu í starf kennara í lýðræðisvitund og siðferði sem auglýst var í júní 2020.“

