Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Meintur íslenskur ofbeldismaður leitar vorkunnar: „Fólk sér hann bara eins og hann auglýsir sig“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Inga segir ofbeldismann sinn leita vorkunnar á Facebook eftir að hún opnaði sig um ofbeldið. Hún segir hann vera inn í hóp þar sem hann heldur úti andlegum sjónarmiðum, segist hafa lent í miklu einelti og fær hrós fyrir hugrekki. Inga greinir frá þessu á facebook síðunni Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu.

Hér er færsla Ingu í heild sinni:

„Gerendameðvirkni (Bara smá púst frá mér svona snemma dags)

Fyrrverandi ofbeldismaður minn hann er inn á hóp hérna á facebook sem heldur út andlegum sjónarmiðum. Hann talar þar um að hann hafi lent í miklu einelti að undanförnu og undir rós talar um svona hvað þeir sem eru vondir við aðra séu í rauninni klikkaðir. Þar hópast svo fólk saman og þakkar honum fyrir þessu frábæru skrif.

Hann er að setja út á það að ég hafi opnað mig um ofbeldi hans gagnvart mér í rauninni og að snúa því sér í hag. EIns og ég sé „vondi gæinn“. En í rauninni veit ég sjálf og stend með því að það sem ég segi og hef skrifað er sannleikurinn og engin fær hann tekið frá mér.

En það sem ég vildi vekja athygli á að þeir sem eru narsasistar nota sovna taktík til að sanka að sér fólki sem sér það sem rosalega flott og fínt fólk og undir niðri eru þessir menn ekkert þannig. Margir kannski átta sig ekki á því að þessi maður sem umræðir er ekkert eins og hann sýnir sig á samfélagsmiðlum. Hans rétta ljós birtist þó endrum og eins og það fæ ég að sjá í frásögnum barna minna eftir dvöl hjá honum.. en það sér engin annar samt. Fólk sér hann bara eins og hann auglýsir sig.

- Auglýsing -

Myndir og skrif á facebook segja minna en þúsund orð. Fólk getur búið til aðra ímynd af sér með því að pósta myndum þar sem allir eru brosandi en það gæti verið eitthvað hræðilegt og sem hefur gerst korter fyrir brosið og allir á myndinni bara að brosa til þess að þóknast einhverjum. Skrif geta sagt allt annað en raunveruleikinn sýnir.

Það að einhver hafi einhvern tíman verið rosa flottur í idolinu og orðið frægur fyrir það eða hafi sagt einhverja stórkostlega hluti sem miðill, gerir það ekki að verkum að einstaklingurinn sé saklaus af gjörðum sínum.

Ég vona að karma komi og bíti alla gerendur fast í rassinn einn daginn“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -