Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Maryam ósátt við rasíska barnakrossgátu – Sjáðu svarið frá útgáfunni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Maryam Holton birti færslu á Twitter þar sem hún segir frá ótrúlegum samskiptum sínum við ÓP-útgáfu sem gefur út krossgátublaðið Barnagátur.

Segir hún frá því í færslunni að sjö ára sonur hennar hafi verið að svara krossgátu úr blaðinu Barnagátur er hún rak augun í orð sem átti að skrifa í gátuna.

„7 ára sonur minn var að svara krossgátu í vor og mér var mjög brugðið þegar ég sá orðið sem vantaði í krossgátuna. Ég sendi ábendingu á Barnagátur og fékk þetta svar í dag. Er ekki í lagi?“

Orðið sem var í gátunni er „svertingja“ og vísar örin niður. Orðið sem lesandinn á að skrifa er fimm stafa og byrjar á N.

Maryam sendi tölvupóst á ÓP-útgáfuna sem gefur blaðið út og er svarið kom henni á óvart.

- Auglýsing -

„Daginn, þetta er reyndar gömul gáta og þá var þetta bara orðalagið á þeim tíma. Við tökum tillit til þess og notum hana ekki aftur…en hvað finnst þér þá um orðið „hvítingja“ white trash? Sem blökkumenn nota ansi oft um okkur?“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -