Tinna Berg Rúnarsdóttir segir farir sínar ekki sléttar við Rúmfatalagerinn í samtali við Mannlíf en færsla hennar á Facebook hefur vakið mikla athygli. Maðurinn hennar Marinó Magnús starfaði þar sem verslunarstjóri í nokkur ár en svo kom áfallið. Hann var greindur með heilaæxli og fór í aðgerð þess vegna. Hann náði bata nokkuð skjótt þrátt fyrir allt. Tinna segir að ekki hafi liðið að löngu eftir að hann kom til vinnu á ný þar til að honum var sagt upp.
Tinna lýsir málinu nánar og segir: „Eins og margir vita hefur maðurinn minn starfað sem verslunarstjóri í Rúmfatalagernum undanfarin ár. Hann tók við verslun á Selfossi árið 2015 og að mínu mati kom henni svolítið á kortið aftur. Marinó hefur alltaf stundað sína vinnu vel, haft allan hug við vinnuna og meira segja svo oft þannig að vinnan hefur haft forgang yfir okkur fjölskylduna hans. Marinó hefur alltaf verið mjög heilsuhraustur, sjaldan sem aldrei lasinn, hefur sloppið vel við að vera heima með veik börn eða eiginkonu,“ segir Tinna.
Veiktist fyrst í vinnunni
Það var í vor sem fann fyrst fyrir æxlinu. „Þann 1 apríl síðastliðinn kemur Marinó heim úr vinnu og segir mér að hann hafi fengið hausverk, misst sjónina og séð stjörnur í smástund í vinnunni (fór hann heim úr vinnu, nei alls ekki). Ég neyði hann upp á HSU því ég hélt að hann væri að fá heilablóðfall eða slag. Ekkert kom í ljós í þessari skoðun en hann var boðaður í myndatöku vikuna á eftir. Allan apríl var hann reglulega í myndatökum og svoleiðis en fékk aldrei svona „kast” aftur,“ segir Tinna.
Hann fékk síðar í mánuðinum greiningu. „Í lok apríl kemur svo í ljós að hann sé með æxli við heila, rétt við heiladingul. Sjokkið var gífurlegt og þurftum við alveg smá tíma til að meðtaka þetta. Okkur var sagt að hringt yrði næstu eina til tvær vikurnar til að boða hann í aðgerð til að reyna að skera æxlið í burtu. 14. maí fór Marinó í aðgerð til að fjarlægja æxlið og fram að því mátti hann ekki vera í vinnunni, vegna einhverrar veiru sem herjar á samfélagið okkar,“ segir Tinna.
Hafði aldrei séð svo mikið blóð
Hún segir að þetta hafi gengið vel miðað við aðstæður. „Aðgerðin gekk vel og náðu þeir að fjarlægja allt. Marinó var heima í 2 vikur til að jafna sig og ætlaði að mæta í vinnu aftur 1. júní, en ákvað að taka aðeins lengri tíma í að jafna sig. Í júní vorum við úti í garðinum þegar byrjaði að blæða úr nefinu á honum, svo mikið að nefið réði ekki við það heldur frussaðist út úr munninum á honum, ég hef aldrei á minni ævi séð jafn mikið blóð,“ lýsir Tinna.
Hann segir að aldrei hafi heyrst í neinum yfirmanni Marinós. „Hann var fluttur með skyndi upp á HSU þar sem reynt var að stoppa blæðinguna í þrjár klukkustundir án árangurs, hann var því fluttur í Reykjavík þar sem þeim tókst að stöðva blæðinguna eftir 6 klst. Læknarnir fundu enga útskýringu á þessari blæðingu en næstu 3 fimmtudaga á eftir blæddi úr nefinu á honum, hann var sendur í myndatöku og allskonar rannsóknir en þeir hvorki fundu staðinn sem blæddi frá né merki um blæðingu. Meðan á þessum veikindum stóð heyrðist ekki í einum yfirmanni Rúmfatalagersins til að svo mikið sem athuga hvernig hann hefði það,“ segir Tinna.
Mætti til vinnu fljótt
Þrátt fyrir þetta hafi Marinó mætt til vinnu í byrjun júlí. „Þann 6. júlí byrjar Marinó að vinna aftur og af fullum krafti eins og honum einum er lagið. Þann 27. júlí er hann boðaður á fund hjá framkvæmdarstjóra Rúmfatalagersins þar sem honum er sagt upp á staðnum, ekki er óskað eftir að hann vinni uppsagnarfrestinn, svo er hann bara sendur heim, atvinnulaus. Í uppsagnarbréfinu kemur fram að honum hafi verið sagt upp vegna skipulagsbreytinga sem er víst það sem fyrirtæki geta skýlt sér bak við. Örfáum klukkustundum eftir að honum er sagt upp er búið að loka netfanginu hans, nafn hans fjarlægt af heimasíðu fyrirtækisins og hreinlega eins og maðurinn hafi aldrei starfað þarna,“ segir Tinna.
Hún veltir fyrir sér hvort þetta geti verið eðlilegt. Farið er fram á rökstuðning á uppsögn og fékk hann útskýringar sem eiga ekki við nein rök að styðjast, hvorki tölulegar né annað. Skipulagsbreytingarnar eru þær að breyta eigi starfinu hans og laununum. Hvernig er hægt að breyta starfi verslunarstjóra, á ekki að hafa neinn verslunarstjóra eða? Ég bara spyr því ég veit ekki,“ spyr Tinna.
Aldrei kvartað
Hún segir að aldrei hafi verið kvartað undan störfum hans. „Það eru allir hissa á þessu því engar viðvaranir hefur hann fengið að heyra áður, aldrei fengið að heyra aðfinnslur af starfi hans eða neitt í nánd við það. Allt í einu, upp úr þurru er manninum bara sagt upp og missir þar af leiðandi allt vinnuöryggi. Eins finnst mér eins og mjög mörgum, undarlegt að uppsögn komi fyrirvaralaust nánast um leið og maðurinn mætir til vinnu eftir svo alvarleg veikindi,“ segir Tinna og bætir við að lokum:
„Mér finnst ótrúlegt að stór fyrirtæki eins og Rúmfatalagerinn geti bara komið svona fram við fólk sem hefur lagt allt sitt í vinnuna, unnið dag og nótt þegar var verið að flytja búðina á nýja staðinn, allt tilbúinn að redda því sem þarf að redda og fleira má telja. Ég hef heitið því að ég mun ekki versla í Rúmfatalagernum framar.“

